áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Þriggja kynslóða barátta gegn sömu vitleysunni, mann fram af manni, hlýtur að taka mjög mikið á, sérstaklega þegar baráttan er við ríkið, er við okkur sjálf. Ríkið er ekkert annað en við, ríkið er bara kerfi sem við búum til utan um sameiginlega hagsmuni, það að passa upp á okkur öll, það að passa upp á náttúruna okkar, það að passa upp á þetta samfélag okkar. Hvernig í ósköpunum getur einhver hluti þess ríkis barið höfðinu við steininn í hálfa öld til þess að rústa Þjórsárverum? Af hverju ekki bara hægt að segja þeim að hætta þessu? Ég segi þeim það reyndar í nefndaráliti mínu. Ég veit ekki hvort það hafi eitthvert lagagildi ef tillögur mínar verða samþykktar en ég er alla vega búinn að koma því frá mér.
Varðandi slaginn eins og hann leit út í gamla daga, þar sem þurfti að berjast fyrir hverri virkjun fyrir sig, það var náttúrlega skipt um kerfi síðan. Rammaáætlun var innleidd þegar stöku stóru virkjanirnar voru bara búnar. Það var ekki tekið til við að búa til eitthvert heildarkerfi fyrr en Ísland var nánast komið að því að vera búið að botnvirkja sig. Þess vegna er líka svona stíft í rammaáætlun, vegna þess að kostirnir sem eru eftir, virkjunarkostir sem er hægt að upphugsa sér í dag, eru orðnir miklu erfiðari. Þeir eru farnir að seilast inn á viðkvæmari náttúru, dýrmætari svæði fyrir kannski minni fjárhagslegan ábata. Þannig að það er kannski eðlilegt að nýtingarflokkur rammaáætlunar fari minnkandi stig fram af stigi núna, vegna þess einfaldlega að fyrri kynslóðir kláruðu auðveldu bitana. Núverandi kynslóðir mega varla vera þekktar að því að klára alla restina. Við þurfum kannski að fara okkur hægt til þess að komandi kynslóðir hafi líka eitthvað um það að segja hvernig landinu verði ráðstafað til lengri framtíðar.