152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[16:49]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Rammaáætlun er mikilvægt stjórntæki. Þetta segir meiri hlutinn í nefndaráliti sínu við tillögu um afgreiðslu málsins hér á þingi og ég heyri að það eru fleiri hv. þingmenn, bæði hér í salnum og í húsinu, sem taka undir það. Það er ekkert að ástæðulausu sem okkur finnst þetta mikilvægt stjórntæki. Í þessu mati sem liggur fyrir og liggur til grundvallar, eins og fram kemur í löggjöfinni, eru undir einstaka virkjunarhugmyndir en jafnframt landsvæði. Það er mjög mikilvægur þáttur í þessu öllu saman, að þetta snýst um landsvæði en ekki bara einstaka virkjunarhugmyndir. Eins og hefur verið komið inn á hér í ýmsum ræðum fyrr í dag þá ríkti engin sátt um þá aðferðafræði, ef aðferðafræði skyldi kalla, sem tíðkaðist hér áður en þetta stjórntæki kom til sem var að verka sig í gegnum eina virkjunarhugmynd í einu. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir minnti okkur öll hér á þann hræðilega slag sem við stóðum öll frammi fyrir varðandi Kárahnjúkavirkjun. Það eru hins vegar mjög skiptar skoðanir um þessi mál og þetta stjórntæki er ekkert fullkomið, alls ekki. Reynslan segir okkur að það er þörf á endurskoðun þess enda er kveðið á um það í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að það verði að endurskoða. Ég kem að því á eftir. En eins og ég segi, stjórntækið rammaáætlun er ekki óumdeilt.

Ég vil að einhverju leyti taka undir orð hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur þegar hún bendir á, og ég vona að ég hafi rétt eftir hv. þingmanni, að áralöng töf á afgreiðslu áfangans, þess sem við erum að ræða hér í dag, hefur líka að einhverju leyti skaðað umræðuna. Það að þinginu hafi ekki og fyrirrennurum okkar hér í þessum sal hafi ekki auðnast að klára afgreiðslu á þessum áfanga hefur truflað umræðuna, skulum við segja, og markað hana. Ég hef sagt í fleiri ræðum að það tók nú eiginlega steininn úr að mínu viti þegar umræða um raforku fór hér fjöllunum hærra í vetur og ekki alltaf byggð á skýrum rökum. Við erum það land sem framleiðir hvað mesta raforku á haus í heiminum. Það er ekki þar með sagt að við mætum orkuskiptunum — sem nauðsynlegt er að mæta, ég held við séum öll sammála sem hér erum inni að það að sporna gegn loftslagsvánni með öllum tiltækum ráðum er stærsta verkefni samtímans — einvörðungu með því að brjóta nýtt land. En það má færa sannanir fyrir því að ákveðnir aðilar hafi talað mjög stíft fyrir því að það sé eina leiðin og alls kyns, leyfi ég mér að segja, virðulegi forseti, útópískar hugmyndir um það að hér verði engin framtíð nema við öflum orku með stórvirkum vinnuvélum. Ég sjálfur hafna þessu, ég hafna þessari nálgun. En sem betur fer er umræðan að þróast í rétta átt, vil ég meina því ég er bjartsýnn maður að uppleggi, m.a. með umræðum í þingsal um afgreiðslu á öðru máli, sem er nú reyndar breyting á þessari löggjöf sem lýtur að því að auðvelda það að hægt sé að stækka vélbúnað í virkjunum án þess að til komi brot á nýju landi til að vinna betur orku út úr vatnsfalli sem við höfum þegar nýtt, erum að nýta og höfum þegar tekið ákvörðun um að nýta. Fara betur með auðlindina í stað þess að ráðast í að brjóta nýtt land. Það er ein leið. Orkusparnaður er önnur leið. Ég tek gjarnan þátt í samtölum þar sem fólk hlær upp í opið geðið á mér og segir að þetta sé algjört rugl. Orkusparnaður, það er nóg af orku hér. En það er bara enginn sómi að því að eyða því sem nóg er af, enginn sómi, og það á líka við um raforkuna. Ný tækni eins og einhverjir hv. þingmenn hafa komið inn á í fyrri ræðum er líka leið til að fara betur með. Það sem er kannski nærtækast fyrir okkur heima fyrir, sem erum þó ekki nema notendur 5% allrar framleiddrar raforku á landinu, þ.e. heimilin í landinu, er að sjá þetta á rafmagnsreikningunum ef við bara skiptum um ljósaperurnar, notum svokallaðar sparperur. Við getum kannski þakkað okkar samvinnu í Evrópu að við erum núna skyldug til að horfa til þessa og getum ekki selt hérlendis perur sem eyða meiru. En þetta er auðvitað bara pínulítið dæmi og telur ekkert mikið inni í stóru myndinni. En auðvitað gerir margt smátt eitt stórt og það sama á við þegar við ætlum að ráðast í frekari brot á landi, þá gerir auðvitað þegar upp er staðið margt smátt eitt stórt.

Þegar rammaáætlun, þessu mikilvæga stjórntæki, var komið á á sínum tíma þá var hún auðvitað ákveðin sáttaleið. Ég held að ég hafi tekið rétt eftir og ég vona að ég sé ekki að fara með fleipur, en hv. þm. Andrés Ingi Jónsson sagði í fréttum í vikunni að hún væri málamiðlun í sjálfu sér. Við eigum eftir að ræða það kannski örlítið betur hér í hliðarsölum hvað hann átti við með þessum orðum. En hún snýst sannarlega, eins og hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir fór yfir, um hvort, hvar og hvernig við öflum raforku á Íslandi. Hún er sannarlega tæki, eins og kemur fram í nefndarálitinu, sem vert er að halda í, efla og styrkja frekar því við eigum ekkert betra. Eins og staðan er í dag þá eigum við ekkert betra og ég held við séum öll sammála um það, hvar í flokki sem við stöndum, að við viljum ekki hverfa til baka til þess tíma þegar við vorum að takast hér á um einstaka virkjunarkosti með tilheyrandi sársauka og/eða gleði í einhverjum tilfellum, ég ætla ekkert að draga úr því þótt ég hafi ekki endilega deilt henni sjálfur.

Faglegar forsendur fyrir röðun verkefnisstjórnar. Hér hafa margir ágætir hv. þingmenn farið yfir það hvernig þetta verkfæri er og ég greini það alveg í umræðunni að það gætir líka ákveðins misskilnings og ég hef fullan skilning á því, þetta er flókið verkefni. Við tókumst á við þetta í nýrri umhverfis- og samgöngunefnd lengi og á mörgum fundum í vetur og eðli málsins samkvæmt erum við öll alltaf að læra eitthvað nýtt í hverju tilfelli sem við opnum umræðuna og förum af stað. En í grunninn byggja tillögur verkefnisstjórnar á tillögum faghópa sem hún skipar sem í sitja okkar færustu vísindamenn sem leggja til grundvallar eftir ákveðnu skipulagi, ég ætla ekki að rekja það frekar hér, þá þætti sem þarf að vega og skoða þegar gerð er tillaga um að einstök virkjunarhugmynd skuli nýtt, eða ekki nýtt per se heldur gerð tillaga um að hún fari í nýtingarflokk. Það er svo bara alveg sjálfstæð ákvörðun út af fyrir sig og fylgir algerlega öðru hvort hún verði einhvern tíma nýtt og því ber að halda til haga eða hvort þarna séu svo rík náttúruverðmæti undir að þetta landsvæði, svo ég komi að því aftur, beri að vernda gegn orkuvinnslu. Vinna verkefnisstjórnar og faghópanna felst í miklu og víðtæku samráði. Og þetta segi ég nú vegna þess að eðlilega vekur þessi umræða sem við erum að eiga hér á síðustu dögum þingsins upp sterkar tilfinningar og miklar og skýrar skoðanir, ekki síst úr náttúruverndarhreyfingunni á Íslandi. Það er algerlega hárrétt sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir segir hér og dregur upp í nokkrum myndum, að náttúruverndarhreyfingin hefur barist eins og ljón við einstakar virkjunarhugmyndir, lagt sitt af mörkum þegar kallað er eftir umsögnum og farið yfir í víðtæku samráði verkefnisstjórnar og faghópanna. Eðli málsins samkvæmt, þegar þú ert í slíkri baráttu, þá gefst þú ekkert upp. Þetta skil ég afar vel því ég tel mig tilheyra þessari hreyfingu.

Það hefur verið sagt um þetta tæki, og það sé þá t.d. einn af ágöllunum, að þarna sé í rauninni allt landið undir, alltaf allt landið undir. Það sé í rauninni í boði að láta sér detta í hug alls kyns virkjunarhugmyndir hvar sem er nema að því gefnu að það sé búið að ákveða í gegnum þetta ferli og hér með ákvörðun Alþingis að svæði skuli verndað gegn orkuvinnslu. Það er mjög áhugaverð nálgun, svo ég haldi nú áfram að vísa í hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur, sem hefur komið til umræðu og til er fyrirmynd að í íslenskri löggjöf frá 1994, í lögum um vernd og veiðar villtra fugla og spendýra. Þar eru villtir fuglar og villt spendýr á Íslandi í grunninn friðuð. En það eru gerðar undanþágur með vísindalegum rökum á því hvort heimila skuli veiðar í tiltekinn tíma, á tilteknum árstíma eða yfir höfuð ekki vegna þess að stofnstærðin er léleg. Það byggir á vísindalegu og faglegu mati. Mér finnst þetta bara algjörlega umræðunnar virði og skoðunarinnar virði nú, einmitt nú þegar við vitum að við erum að framleiða þetta mikla raforku á hvern og einn einstakling og við höfum ákveðna sýn fyrir framtíðina, hún snýr fyrst og síðast að orkuskiptum en líka hvað varðar græna atvinnuuppbyggingu en þó ekki á stórum skala. Ég held að það sé ekki nokkur maður í dag að tala um stóriðju sem við sáum hér fyrir einhverjum áratugum síðan. Það væri e.t.v. vert að snúa þessu við og leggja það til grundvallar í umræðunni hvort við ættum kannski að horfa á þetta eins og villidýralögin, sem þau eru stundum kölluð, eru lögð upp, þ.e. það er ekki endilega allt landið undir heldur er landið allt friðað. Svo þurfum við að skoða með ákveðnum rökum hvernig við í rauninni tökum ákvarðanir um að breyta út af því með ákveðnum forsendum. Það hefur verið gagnrýnt að vægi á mati mismunandi kosta í þessu samhengi riðlist þá af því að ekki sé allt landið undir. En náttúruverðmætin vega mest. Þannig er löggjöfin sett upp. Þar sem náttúruverðmætin eru rík, og það byggir á vísindalegri niðurstöðu, er svæðið mjög verðmætt og ef maður skoðar ofan í kjölinn þessa vinnu sem var framkvæmd á árunum 2013, 2014, 2015, alla vega skilaði verkefnisstjórnin tillögu 2016, þá sjáum við að þar sem náttúruverðmætin eru ríkust þá vega þau auðvitað mest. En hins vegar vitum við það líka, og það er að hluta til komið inn í undirbúninginn að þessum tillögum til ráðherra, að horft er til mats á samfélaginu undir faghópi 3. Það mat hefur verið gagnrýnt en við vitum líka og komum inn á það í nefndaráliti meiri hlutans að verklagið og vinnulagið við að framkvæma þetta mat hefur tekið miklum breytingum. Það er m.a. það sem við horfum til í meiri hlutanum þegar við erum að gera tillögur að ákveðnum tilfærslum. Það er mikilvægt að horfa til samfélagslegra áhrifa. Það er mikilvægt að leggja samfélagslega sátt sem breytu inn í ákvörðunina. Ég hef alveg heyrt það og ég skil alveg hvað átt er við þegar sagt er að auðvitað verðum við ekki öll sátt. Það gildir um allar ákvarðanir. En það er breyta sem skiptir máli að mínu mati að horfa til og tryggja að sé tekið tillit til með einhverjum hætti, að við náum sem mestri samfélagslegri sátt um stórar framkvæmdir. Við þurfum ekkert endilega verið að tala um virkjunarhugmyndir í því samhengi, það geta verið línulagnir, það getur verið ákvörðun um uppbyggingu íbúðabyggðar eða hvað það er sem við viljum, eitthvað sem breytir okkar nánasta umhverfi. Ef við náum ekki þessari samfélagslegu sátt þá er það ávísun á ósætti og tvístruð samfélög. Við eigum því miður allt of mörg dæmi um það í íslenskri sögu hvernig samfélög hafa tvístrast, jafnvel fjölskyldur hafa tvístrast eins og frægt er orðið og hefur verið fjallað um í tengslum við baráttu Gnúpverja fyrir sínum baráttumálum við vernd Þjórsárvera, því að hér hefur verið komið inn á Þjórsárver. Það er ágætt að skjóta því inn að Þjórsárver öll voru friðlýst, allur Hofsjökull og öll Þjórsárver voru friðlýst 2017 af þáverandi umhverfisráðherra, Björt Ólafsdóttur. Þannig er það. Það hefur ekkert með tillöguna sem rædd er hér í dag að gera. Þetta er friðlýst svæði vegna mikilvægis þess sem það sem býr yfir og þeirra náttúruverðmæta sem þar eru undir.

Það hefur líka komið fram gagnrýni á vernd heilu vatnasviðanna. Það sé ótækt að horfa til þess að taka frá heilu vatnasviðin þegar fram eru komnar, ég leyfi mér að segja stórkarlalegar virkjunarhugmyndir sem gera það að verkum — þær þykja of mikið inngrip, raska of miklu þannig að þarna sé fórnarkostnaðurinn ekki boðlegur. Því hefur verið velt upp, m.a. með rökum nýrrar tækni, að e.t.v. séu til einhverjar hugmyndir eða útfærslur sem raska ekki þessum náttúruverðmætum. Ég hef ekki séð þær enn þá, bara alls ekki séð þær, en ég er ekki að segja að þær séu ekki til, ég er ekki að segja að það sé ekki hægt að leita leiða í því. En útgangspunkturinn er að það er mikilvægt að vernda heilu vatnasviðin og það er eitt af því sem við ávörpum líka í nefndarálitinu, að framkvæma ákveðið mat á þessu. Hversu mörg vatnasvið eru heil og óröskuð á Íslandi? Hversu mörg vatnasvið eru röskuð og hver er röskunin? Hversu mikil er hún? Þá höfum við frekari tölur á borðinu og getum skoðað þá í heild, í samhengi alls landsins, hver staðan er á vatnasviðum. Þar er brýnt, og við nefnum það líka í nefndarálitinu, að horfa til vatnaáætlunar, annars tækis sem við höfum fengið lánað og aðlagað hér að íslensku lagaumhverfi frá vinum okkar á meginlandi Evrópu. Hvernig sem horft er á þetta þá er það alltaf vinna faghópanna og verkefnisstjórnarinnar sérstaklega sem gerir tillögu til ráðherra sem gerir svo aftur tillögu til þingsins að vega allar fram komnar hugmyndir saman þannig að við erum aldrei að tala um mat á einni hugmynd í einu.

Þessi afgreiðsla Alþingis, þ.e. það sem við erum að ræða nú og tökum til afgreiðslu á morgun, er mikilvægt skref, samanber orð formanns umhverfis- og samgöngunefndar og framsögumanns nefndarálits meiri hlutans sem ég stend að. Þetta eru tillögur sem verkefnisstjórn skilaði árið 2016. Þetta er mjög umfangsmikil tillaga. Því hefur verið fleygt og við höfum rætt það í nefndinni og ég held að tveir hv. þingmenn hér á undan mér hafi meira að segja komið inn á það og ég held að við séum öll sammála um það að í grunninn er hún í rauninni mjög stór viðureignar. Það er kannski ástæðan fyrir töfunum, að þetta hefur ekki gengið og ekki klárast. Það hefur líka verið rætt með vísun til þess að allar fram komnar hugmyndir, bæði þær sem eru þegar nýttar eða eru í þegar afgreiddum flokki eða eru hugmyndir sem eru til mats, verða alltaf vegnar saman. Ég held því að okkur sé algjörlega óhætt að sjá minni áfanga í einu. Þá held ég að þeir verði viðráðanlegri í allri umfjöllun og umræðu og að mörgu leyti auðveldara að sökkva sér ofan í það allt saman sem getur reynst örðugt. Þetta er mikið af gögnum og mikil vinna þó að ég dragi ekkert af mér í því.

Ég vil að það sé ítrekað vegna umræðunnar núna um það sem er til að mynda afgreitt í nýtingarflokk að þá er ekki þar með sagt að það verði nýtt. Það eru mörg dæmi um það í gildandi rammaáætlun frá 2013 og með viðbótum 2015 þar sem ekki hefur verið ráðist í nýtingu og eru engin teikn endilega um það þótt kosturinn sé í nýtingarflokki. Að sama skapi eru tilfærslurnar sem við gerum tillögu um, annars vegar úr nýtingarflokki og hins vegar úr verndarflokki yfir í biðflokk, ekki skilaboð um að það eigi að fara í nýtingarflokk. Tólið býður ekki einu sinni upp á þá túlkun, svo það sé sagt. Þetta snýst um mat á þessum kostum með ákveðnum forsendum og ég minni á að náttúruverðmætin er ekki farin, fyrir þau sem hafa áhyggjur af því. Þau eru þarna og hafa nú e.t.v. aukist í einhverjum tilfellum í nýju mati en það verður bara að koma í ljós. Þetta er verkefni faghópa og verkefnisstjórnar nái tillagan fram að ganga hér í þinginu.

Mig langar að lokum að minna á það, af því að hér voru nú einhverjar aðdróttanir um að í fyrri ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi ekki náðst mikill árangur við þetta verkefni, að það voru engu að síður sjö virkjunarhugmyndir á fjórum svæðum í vatnsafli sem voru friðlýst gegn orkuvinnslu á grundvelli ákvörðunar sem Alþingi tók árið 2013 og annað eins í jarðvarma. 14 virkjunarhugmyndir á svæðum sem voru friðlýst gegn orkuvinnslu. Þetta eru svæði eins og Jökulsá á fjöllum. Þetta er Geysir í Haukadal. Þetta eru Kerlingarfjöll. stórkostlegar náttúruperlur á Íslandi. Eftir sitja engu að síður óafgreitt úr þeim áfanga, og þegar ég segi óafgreitt þá á ég við að það er friðlýst gegn orkuvinnslu, fjórir kostir eða hugmyndir um kosti í vatnsafli á þremur svæðum og tveir í jarðvarma á einu svæði og ef þessi tillaga nær fram að ganga, sem ég bind vonir við, þá bætast við fimm nýjar virkjunarhugmyndir í vatnsafli á tveimur stórum vatnasviðum, Skjálfandafljót og Skaftá í Skaftárhreppi. Og af því að vísað var til verkleysis á síðasta tímabili þá erum við þarna bara að tala um friðlýsingar gegn orkuvinnslu og ekki hinar óteljandi margar friðlýsingar á grundvelli náttúruverndarlaga eða stækkanir svæða eða þjóðgarða sem lá undir. Þau geta kynnt sér það sem hafa áhuga á.

Þá er kannski ágætt að draga það fram líka sem komið hefur verið inn á hér að það eru ákveðin tímamót í þessu samhengi og er þá kannski verið að vinda ofan af ákveðinni, við skulum segja óánægju sem hefur ríkt um að Orkustofnun hafi á sínum tíma lagt til inn í áætlunina 28 virkjunarhugmyndir án þess í rauninni að einhver óskaði eftir því að ráðast í nýtingu þeirra. Það hefur haft þau réttaráhrif varðandi allt það sem situr í biðflokki að það má ekki ráðstafa nýtingu á því landi með öðrum hætti. Ég vil draga fram í því samhengi, ég var nú bara að telja það meðan ég sat hér í sæti mínu, að af þessum 28 virkjunarhugmyndum sem Orkustofnun hefur þá dregið út úr áætluninni og biðflokkurinn minnkað sem því nemur eru 16 þeirra innan eða við miðhálendið. Hér hefur verið komið inn á það að við afgreiðslu þessa máls er talað um t.d. flutning á virkjunarkostinum Skrokköldu úr nýtingarflokki í bið, m.a. með þessum rökum um mikilvægi verndar víðerna og landslagsheilda á hálendinu, mikilvægi sem hefur bara aukist og vaxið síðan þessar tillögur lágu fyrir. Þá förum við yfir það í nefndarálitinu að það kom til umræðu í nefndinni að það væri margt sem þyrfti að horfa til og við leggjum upp með að horft verði til við endurskoðun laganna sem er einmitt verkefni á könnu hæstv. ráðherra sem situr hér í salnum, af því að það er kveðið á um það í stjórnarsáttmála. Það eru skilaboð sem ég hefði haldið að væru líka náttúruverndinni þóknanleg eins og þau að þessi stærðarviðmið sem eru til grundvallar í lögunum, svo ég taki nú dæmi af vatnsafli, 10 MW, séu í rauninni ekki viðmið sem hægt er að horfa til vegna þess að rask á svæðum þar sem á að reisa 9,9 MW virkjun, sem fer þá ekki í gegnum þessa áætlun, sé viðlíka og fyrir 15 eða 18 MW virkjun. Við þekkjum of mörg dæmi þess. Ég veit og treysti því að hæstv. ráðherra muni horfa til þessa sem og annarra atriða sem meiri hlutinn tilgreinir í nefndaráliti sínu fylgjandi þessari tillögu.