áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ábyrgð okkar sem störfum á Alþingi er mikil og fyrir okkur liggja mikil og stór en misflókin verkefni. Til að geta leyst farsællega úr þeim þurfum við að hafa þann eiginleika að geta horft til allra átta, hvort sem er til nútíðar, fortíðar en ekki síður til framtíðar. Að geta átt gott samtal og samvinnu verður oft og tíðum til þess að niðurstaða næst í flókin verkefni. Svo var í vinnu sem tengdist svokölluðum ramma. Saman höfum við í umhverfis- og samgöngunefnd loksins náð sátt um rammann sem segja má að hafi legið í frosti allt frá árinu 2013. Þýðingarmikil langþráð sátt og samstaða hefur nú náðst en fyrir nefndina hafa komið fjölmargir gestir og þakka ég þeim fyrir góð innlegg og góðar umræður.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að Ísland eigi að vera í fararbroddi í umhverfismálum á alþjóðavísu. Við viljum að Ísland skipi sér í fremstu röð í baráttunni gegn loftslagsvánni og ætlum okkur að uppfylla ákvæði Parísarsamningsins. Við höfum jafnframt sett okkur markmið um að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Orkuskipti eru ríkur þáttur í framlagi Íslands til að ná árangri í baráttunni við loftslagsvána en svo að þeim markmiðum sé náð verðum við að tryggja aðgang að grænni orku með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Okkar hlutverk er að nýta ekki meira en við þurfum, huga að sjálfbærni og umhverfisvænni lifnaðarháttum. Það er brýnt að við temjum okkur betra og heilbrigðara neyslumynstur en það er einnig mikilvægt að sátt ríki um þær virkjanir sem þarf til að byggja upp grænt og kolefnishlutlaust samfélag. Mestu skiptir að það verði gert af varfærni gagnvart viðkvæmri náttúru landsins samhliða því að horft sé til betri orkunýtingar. Þá þarf að koma í veg fyrir tap á orku úr orkukerfinu ásamt því að bæta nýtingu á þeim virkjunum sem fyrir eru.
Rammaáætlun er mikilvægt stjórntæki sem varðar vernd svæða og orkunýtingu og sem vert er að halda í og styrkja enn frekar. Hún nær yfir helstu orkulindir landsins og í meðferð hennar á að taka til ólíkra hagsmuna á breiðum grundvelli. Rammaáætlun er ætlað að tryggja að nýting landsvæða byggist á langtímasjónarmiðum og víðtæku samráði um verndargildi náttúru og menningar, hagkvæmni og arðsemi. En það þarf að þróa áfram þetta góða verkfæri okkar í ljósi breyttra áherslna í ferðaþjónustu, samfélaginu, skuldbindingum Íslands og stöðunni sem nú ríkir í heimsmálum. Ég fagna því að samstaða hafi loksins náðist um þau atriði sem tiltekin eru í nefndarálitinu en það er vissulega ekkert sjálfgefið. Stór hluti af landinu er nú þegar í nýtingu eða vernd sem einnig má teljast til nýtingar en það er mikilvægt að við nýtum landið okkar af varfærni því að við viljum að komandi kynslóðir fái að njóta ósnortinnar náttúru.
Okkar dýrmætasti arfur til komandi kynslóða er hrein og tær náttúra en svo að við getum skilað af okkur arfinum með þeim hætti þurfum við að skipuleggja hvernig við göngum um náttúru landsins með skýrri framtíðarsýn. Vernd og friðun á tilteknum landsvæðum er góðra gjalda verð en gæta þarf varúðar þegar ákveðið er að friðlýsa stór svæði til framtíðar. Enn er ósvarað þeirri spurningu hvaðan orka framtíðarinnar eigi að koma. Það er ekki okkar að taka ákvarðanir fyrir komandi kynslóðir. Þó að við hér tökum ekki ákvarðanir um að friðlýsa tiltekin svæði þýðir það þó ekki að við höfum fyrirætlanir um að nýta þau, alls ekki, heldur skiljum við þær ákvarðanir eftir fyrir þingmenn framtíðarinnar út frá þeim þörfum sem verða í samfélaginu í framtíðinni.
Orkusjálfstæði þjóðar verður sífellt mikilvægara í kvikum heimi og nauðsynlegt er að þjóðir geti brugðist hratt við breyttum forsendum. Í þessu samhengi má nefna virkjunarkosti í Skjálfandafljóti, þ.e. Fljótshnúksvirkjun og Hrafnabjargavirkjun A, B og C, en þeir eru í verndarflokki samkvæmt fyrirliggjandi tillögu og telur meiri hlutinn ekki tilefni til þess að leggja til breytingar á því. Skjálfandafljót er eitt af þeim svæðum þar sem leggja þarf mat á friðlýsingu heilla vatnasviða samhliða endurskoðun á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Ekki er hægt að taka ákvörðun um friðlýsingu heilla vatnasviða fyrr en þetta mat liggur fyrir og sama gildir varðandi nýtingu. En þá hefur, í samræmi við markmið stjórnarsáttmálans, kostum í biðflokki verið fjölgað. Betur fer á því að virkjunarkostir séu flokkaðir í biðflokk en í verndar- eða nýtingarflokk á meðan frekari gagna er aflað. Mikilvægt er að samfélagsleg áhrif og óvissa um raunveruleg áhrif framkvæmda á náttúru og lífríki liggi fyrir áður en ákvörðun er tekin um hvort svæði eigi að fara í verndar- eða nýtingarflokk. Það að svæði séu flutt í biðflokk þýðir ekki að þau séu sjálfkrafa komin í nýtingarflokk eða verndarflokk heldur er verið að endurmeta og endurskoða þessa kosti. Það er langt síðan fyrri verkefnisstjórn gerði tillögu um þessi svæði og margt hefur breyst síðan.
Þá hafa einnig kostir sem ekki áttu heima í biðflokki verið teknir út. Athugasemdir komu fram um að fjölmarga virkjunarkosti væri að finna í biðflokki áætlunarinnar sem enginn virkjunaraðilinn hefði óskað eftir mati á. Má þar m.a. nefna virkjunarkosti á Torfajökulssvæðinu, í laxveiðiám á Austurlandi og aðra kosti sem Orkustofnun hefur að eigin frumkvæði og á grundvelli heimildar í lögum nr. 48/2011 falið verkefnisstjórn að fjalla um. Um er að ræða 28 virkjunarkosti, ýmist til nýtingar vatnsafls eða jarðhita. Ástæða þess að viðkomandi virkjunarkostir eru flokkaðir í biðflokk er fyrst og fremst sú að ekki eru til nægjanleg gögn um viðkomandi virkjunarkost og því ekki nægjanlegar forsendur til að hægt sé að leggja til flokkun í verndar- eða nýtingarflokk. Á meðan virkjunarkostir eru flokkaðir í biðflokk eru hins vegar takmörk lögð á aðra landnýtingu á svæðinu. Þannig eru dæmi um að ekki sé hægt að friðlýsa virkjunarkosti í verndarflokki gegn orkuvinnslu þar sem virkjunarkostur innan sama svæðis er í biðflokki. Því mætti segja að viðkomandi virkjunarkostur sé að vissu leyti fastur í biðflokki þar sem enginn virkjunaraðili er að vinna í þróun hans og þar á meðal öflun nauðsynlegra gagna til að hægt sé að leggja til endanlega flokkun í vernd eða nýtingu. Því leggur meiri hlutinn til, sem hluta af þeirri sátt sem mikilvægt er að náist um áætlunina, að fella þessa tilteknu kosti úr áætluninni þar sem enginn virkjunaraðili stendur að baki þeim. Þetta tel ég vera mikilvægt og nauðsynlegt skref.
Virðulegi forseti. Þá er beislun vindorku loksins komin á dagskrá fyrir alvöru. Fjölbreytni í orkuöflun stuðlar að bættu orkuöryggi og sveigjanleika orkukerfisins. Þótt Ísland búi enn yfir óbeisluðu vatnsafli og jarðvarma er skynsamlegt að auka fjölbreytni í orkugjöfum með hagnýtingu vindorku og annarra nýrra endurnýjanlegra orkukosta fyrir raforkuvinnslu. Vindorka er bæði hagkvæm og endurnýjanleg og sem slík einn af betri kostum til framtíðarorkuvinnslu. Í fyrirliggjandi tillögu er í fyrsta sinn að finna virkjunarkost í vindorku. Vindorkukostinum í Búrfellslundi er raðað í biðflokk í fyrirliggjandi tillögu með þeim rökum að hann sé á röskuðu svæði sem hafi lágt verndargildi en áhrif hans á ferðamennsku og útivist séu hins vegar mikil. Meiri hluti nefndarinnar leggur þó til að virkjunarkosturinn, þó breyttur þar sem tveir kostir í Búrfellslundi hafa verið lagðir til, sem gengur styttra, þ.e. færri vindmyllur, færri megavött og búið að færa til á svæðinu, verði lagður til auk þess sem sjónræn áhrif verða töluvert minni en varðandi upphaflegan kost. Þá telur meiri hlutinn að Búrfellslundur geti verið mikilvægur hluti þess að tryggja betur nýtingu þeirra vatnsaflsvirkjana sem fyrir eru á svæðinu auk þess sem það rennur sterkari stoðum undir orkuöryggi landsins.
Öll sú orka sem býr í vindinum getur verið lykilþáttur þegar kemur að því að tappa af þeim þrýstingi sem skapast hefur á kerfi síðustu ár vegna tafa á afgreiðslu á rammanum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að setja eigi sérstök lög um nýtingu vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera. Leggja á áherslu á að vindorkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum, nærri tengivirkjum og flutningslínum þar sem unnt verður að tryggja afhendingaröryggi og lágmarka umhverfisáhrif. Það má alveg heyra að framtíðin búi svo sannarlega í vindinum. Í dag státar engin önnur þjóð af jafn háu hlutfalli grænnar orku af heildarorkunotkun og við Íslendingar gerum. Af því getum við verið stolt en langan tíma tekur að virkja nýja orkukosti og langtímaáætlanir þurfa því að gera ráð fyrir orkukostum til að mæta framtíðarþörfum og auka þannig fyrirsjáanleika og stöðugleika. Því skiptir gríðarlegu máli að sátt hafi náðst um þann ramma sem við leggjum hér fram í dag og vil ég nýta tækifærið og þakka umhverfis- og samgöngunefnd fyrir góða vinnu og eins öllum sem komu til okkar í tengslum við það verkefni.