áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Forseti. Til umræðu í dag er 3. áfangi rammaáætlunar. Í máli hv. þm. Jóns Steindórs Valdimarssonar kom fram, þegar umræðan hófst hér um þetta mál, að afstaða Viðreisnar er að þetta sé mál sem Alþingi þurfi að taka á, mál sem viðkemur mjög ríkum hagsmunum þjóðarinnar og það sé eðlilegt að það fái meðferð, það hafi ekki verið tilgangur laga um rammaáætlun né eðlileg meðferð á valdi Alþingis að framselja það, heldur hafi markmið ferlisins verið að tryggja vandaða rannsókn á þeim orkukostum sem Íslendingum standa til boða og reyna að tryggja það að þær ákvarðanir væru eins vandaðar og nokkur kostur er.
Nú vill þannig til að ég er einn af þeim sérfræðingum sem tók þátt í vinnu við 3. áfanga. Þrátt fyrir að það sé í sjálfu sér rétt að mikil og góð fagleg vinna liggi til grundvallar mati faghópanna þá eru þó gallar á þessari aðferð eins og öðrum mannanna verkum. Fyrst og fremst er það að leggja saman, reyna að tína saman ólíka eiginleika ólíkra virkjunarkosta og búa til úr þeim eina röðun í einni vídd, mjög snúið og erfitt verkefni. Ef við tökum dæmi þá væri það eins og að reyna að velja sér byggingarland með því að tína til ólíka eiginleika þess og leggja þá síðan saman. Stóru gallarnir við þessa nálgun eru að eiginleikar sem í eðlilegri ákvarðanatöku myndu valda því að ekki kæmi til greina að nýta ákveðna kosti fá takmarkað vægi, þ.e. aðferðin sjálf hefur þann galla að þegar einkunnir eru gefnar á skölum sem hafa efri og neðri mörk og síðan tekið einhvers konar vegið meðaltal af þeim skölum þá geta komið skrýtnar niðurstöður úr því. Þannig gæti t.d. byggingarland á Álfsnesi milli ruslahauganna og skotæfingarsvæðisins hæglega verið metið sem ákjósanlegur byggingarkostur vegna þess að þar er til mótvægis ágætt útsýni, þó að engum heilvita manni myndi detta í hug að byggja þær.
Gagnrýni þess faghóps sem ég fór fyrir, sem var faghópur 4, snerist um þetta vandamál. Það er ekki nokkur vafi á því að þeir fagaðilar sem tóku að sér mat hinna ólíku umhverfisáhrifa eða áhrifa á umhverfi sem nýtingu myndi fylgja fyrir þá kosti sem voru undir í rammaáætlun unnu sitt starf vel. Þær rannsóknir eru gagnlegar og grunnurinn að vandaðri ákvarðanatöku í þessum sal, en þær eru að þessu leyti takmarkaðar. Þær eru einhvers konar meðaltalseinkunn. Aðferðin býður ekki upp á annað þannig að ef hlutir falla augljóslega utan eðlilegrar samfellu, þar sem áhrifin eru önnur og umfangsmeiri á einhverjum sérstökum stað, einhvers konar ómælanleiki eða augljós umfangsmikil ástæða liggur til grundvallar því að þeir séu ómögulegir, kemur það illa fram. Í þessu samhengi má nefna að í 4. áfanga, sem ég að vísu kom ekki beinlínis að en Hagfræðistofnun Háskóla Íslands framkvæmdi rannsóknir á nákvæmlega þessu vandamáli í 4. áfanga, kom í ljós að þeir laxastofnar sem hafa oft verið til umræðu í tengslum við Urriðafossvirkjun og umhverfisáhrifin á þá, vógu mun þyngra en sérfræðimatið gerði ráð fyrir og raunar þyngra en sérfræðimatið gerði ráð fyrir að væri mögulegt.
Hvað segir þetta okkur? Þetta segir okkur það að rammaáætlun eins og önnur mannanna verk er einfaldlega bara ófullkomin tilraun sem alltaf má bæta. Ég er sannfærður um það að 4. áfangi tók nokkuð af göllunum úr 3. áfanga til endurskoðunar. Ég er sannfærður um að 5. áfangi mun verða enn þá betri. Þetta undirstrikar líka að einhvers konar krafa um að röðuninni sé fylgt í blindni er eitthvað sem ég get undir engum kringumstæðum stutt og Viðreisn hefur ekki stutt. Það er á endanum ákvörðun þingsins að skoða þessi gögn sem safnað hefur verið af natni og með ærnum tilkostnaði og leggja síðan mat á það hvað þingmenn telja að sé eðlileg röðun á virkjunarkostum í nýtingu, bið og vernd.
Hitt er síðan annað mál hvort nákvæmlega sú tillaga sem hér liggur fyrir þinginu í dag frá meiri hlutanum uppfylli þau skilyrði að hafa byggt á endurmati þessara gagna með faglegri nálgun eða öðrum sjónarmiðum. Það er á þeim grundvelli, á grundvelli efa um að slíkt faglegt mat hafi legið til grundvallar tillögu meiri hlutans, sem Viðreisn mun ekki styðja hana. Sérstaklega á þetta við um tilflutning virkjunarkosta úr vernd í nýtingu og sérstaklega í ljósi þess að verkefnisstjórn fór auðvitað yfir alla þessa valkosti og tók þessar ákvarðanir. Það þyrfti þá mótrök sem réttlæta slíkar breytingar.
Það eru til aðferðir sem hægt er að nota til að leita með beinum hætti til þjóðarinnar varðandi hennar vilja. Á þetta bentum við sérfræðingarnir í faghópi 4 í 3. áfanga í til þess að gera löngu og ítarlegu máli. Í þessari mikilvægu ákvarðanatöku þá finnst mér nokkur skaði af því að þessar aðferðir skuli ekki hafa verið skoðaðar frekar. Nágrannalönd okkar hafa tekið þær upp og má í því samhengi nefna að Bandaríkjamenn hafa notað þessar aðferðir, að leita mats þjóðarinnar á ýmsum aðgerðum í umhverfismálum, um margra áratuga skeið og með þokkalegum árangri og þeim fleytir fram með hverju árinu. Ef við skoðum raunverulega sögu þessa verkefnis, þ.e. þess stóra verkefnis sem lá fyrir Alþingi að taka afstöðu til, hvaða nýtingarkostir til orkuframleiðslu á Íslandi eru þjóðinni hagfelldastir, þá er það aldrei þannig að hægt sé að fara í virkjunarframkvæmdir án umhverfisáhrifa. Við erum að tala um það hvaða tjón, hvaða samdrátt eða rýrnun á umhverfisgæðum Íslands menn telja ásættanlega fyrir orkuábatann. Við þurfum að nálgast það verkefni með einhverjum nýjum hætti vegna þess að þessi málamiðlun sem rammaáætlunin átti að vera hefur siglt í strand eins og meðferðin á þessum lista úr 3. áfanga sýnir. Það er alla vega mín bjargfasta skoðun að skrefið áfram í þessu efni þannig að hægt sé að leysa þennan hnút — vegna þess að á okkur hvílir ábyrgð á öðrum sviðum, t.d. tryggja það að við höfum nægilega raforku í orkuskipti, og við stöndum frammi fyrir vandamálum þar sem við viljum draga úr losun gróðurhúsalofttegunda — aðferðin til þess er að afla endurnýjanlegrar orku. Við þurfum að geta vegið saman þessa ólíku umhverfishagsmuni sem eru annars vegar vernd einstakra svæða sem yrðu fyrir áhrifum vegna virkjana og hins vegar áhrifin á samdrátt í losun. Til þess að geta nálgast verkefnið með þessum hætti þá þarf að leita að mínu mati til þjóðarinnar. Það þarf að beita þessum aðferðum sem gera okkur kleift að gera okkur grein fyrir hvaða eiginleikar það eru við einstaka virkjunarkosti sem stýra því hver velferðaráhrifin eru á líf okkar, á getu okkar til að njóta náttúrunnar, á getu okkar til að lifa lífinu eins og við viljum án þess t.d. að skilja eftir okkur of stórt kolefnisspor. Það þarf að vega saman alla þessa ólíku kosti. Það er enginn á endanum sem getur svarað þessu með neinum óyggjandi hætti að mínu mati nema þjóðin. Á sama tíma og ég segi að auðvitað sé eðlilegt að Alþingi hafi á þessu skoðun, á sama tíma og ég segi að það eru augljóslega vankantar á 3. áfanga og þess vegna fullkomlega eðlilegt að lagðar séu til breytingar á niðurstöðu verkefnisstjórnar þar, þá segi ég líka: Meðan rökin eru ekki sterkari en þau sem meiri hlutinn býður upp á í dag þá er ég efins um að nýja röðunin sé betri heldur en gamla röðunin. Á endanum er það sem við þurfum að gera að bæta aðferðafræðina.