152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[17:46]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Frú forseti. Eftir þrotlausa baráttu náttúruverndarfólks og heimamanna undanfarin 20 ár fyrir verndun Héraðsvatna, jökulsánna í Skagafirði, hillti í héraðssátt, landssátt um verndun jökulsánna, að þær fái runnið frjálsar til sjávar um ókomin ár með sinn sjálfstæða rétt til tilvistar og til að þróast áfram á eigin forsendum, náttúra þeirra og vatnasvið fyrir komandi kynslóðir, fyrir náttúruna sjálfa. Og ég hefði alveg kosið að hæstv. umhverfisráðherra með meiru sæti hér undir ræðu minni.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Skagafirði vann kosningasigur í sínum fyrstu kosningum vorið 2002, ekki síst fyrir loforð okkar um verndun jökulsánna. Í kjölfarið var Villinganesvirkjun í Héraðsvötnum slegin af. Þáverandi stjórnarmeirihluti á Alþingi, tveir núverandi stjórnarflokka, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, reyndu þá að keyra yfir vilja íbúa og verndun ánna með lagasetningu sem tókst að stöðva á síðustu dögum þingsins með eldræðum þingmanna VG daga og nætur — daga og nætur — sem einnig fluttu tillögur um friðlýsingu ánna og vatnasvið þeirra. Þetta rifja ég upp nú því að þau 20 ár sem ég sat í sveitarstjórn Skagafjarðar voru vörðuð þessari baráttu. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur frá stofnun staðið í stafni í pólitískri baráttu fyrir náttúruvernd á Íslandi.

Fyrir 15 mánuðum veitti ég sem sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, ásamt félaga mínum í VG, Álfhildi Leifsdóttur, umsögn um rammaáætlun þar sem lagt var til að jökulsárnar verði í verndarflokki. Umsögnin var gagnorð og skýr. VG vísar til fjölmargra ályktana félagsfunda og stjórnar VG í Skagafirði á undanförnum árum um verndun jökulsánna í Skagafirði. Sveitarstjórnarhópur VG fagnar því að virkjunarkostir sem tengjast Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun séu endanlega slegnir af og vatnasvæði Héraðsvatna sett í verndarflokk í rammaáætlun. Jökulsárnar í Skagafirði með sinni stórbrotnu náttúru eru einstakar og þær ber að vernda, bæði fyrir komandi kynslóðir og á forsendum náttúrunnar sjálfrar. Með því að setja virkjunarkosti í jökulsánum í Skagafirði í verndarflokk er staðfest ótvírætt verndargildi svæðisins og þeir samfélagslegu hagsmunir til framtíðar sem felast í verndun þess.

Í dag sendi svæðisfélag Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Skagafirði frá sér eftirfarandi ályktun vegna afgreiðslu á rammaáætlun, með leyfi forseta:

„Vinstri græn í Skagafirði krefjast þess að farið verði eftir faglegu mati rammaáætlunar hvað varðar jökulsárnar í Skagafirði og þær verði settar í verndarflokk. Héraðsvötnin og jökulsárnar móta ásýnd og ímynd Skagafjarðar og eru undirstaða hins síkvika lífkerfis héraðsins allt frá jöklum til hafs. Tækifæri framtíðarinnar felast í að vernda þau og nýta þau óspjölluð í tengslum við fjölþætta útivist, veiði, ferðaþjónustu, landbúnað og aðra umhverfisvæna atvinnustarfsemi. Þýðing vatnanna fyrir uppeldi fiskseiða, bæði ferskvatnsfiska og sjávarfiska, er einnig ómetanleg. Ferðaþjónusta í Skagafirði er í vexti og hafa fljótasiglingar skapað svæðinu mikla sérstöðu, enda einstakar á heimsvísu. Í rökstuðningi faghóps rammaáætlunar 3 segir m.a.:

„Vatnasvið Héraðsvatna er með hæsta verðmætamat allra landsvæða sem fjallað var um í faghópi 1 í 3. áfanga og þá er virkjunarkosturinn Skatastaðavirkjun C með næsthæstu áhrifaeinkunn allra virkjunarkosta sem faghópurinn fjallaði um. Virkjunarkosturinn er á svæði sem er óbyggð víðerni samkvæmt lagalegri skilgreiningu og virkjun á svæðinu myndi hafa í för með sér umtalsvert rask á hálendi, svo og á sífrerarústum og fleiri fyrirbærum sem Íslendingar bera alþjóðlega ábyrgð á. Virkjun myndi slíta sundur vistkerfi og samfélög lífvera, hafa mikil neikvæð áhrif á vistgerðir með verulegt verndargildi samkvæmt náttúruverndarlögum og valda mikilli röskun vegna breytinga á rennsli og framburði, sérstaklega á flæðiengjum sem hafa mikið vistfræðilegt gildi og eru þær umfangsmestu á landinu. Þá gætu framkvæmdirnar spillt stórum minjaheildum í Austur- og Vesturdal frá árunum 870–1400, sem jafnvel eru einstakar á heimsvísu. Einnig yrði mikil skerðing á sjónrænni fjölbreytni og á fágætum landslagsgerðum.“

Vinstri græn í Skagafirði ítreka rökstuðning faghóps rammaáætlunar 3 og krefjast þess að farið verði eftir faglegu mati og um leið þeirri faglegu sátt sem rammaáætlun er ætlað að skapa. Vinstri græn í Skagafirði leggjast alfarið gegn því að jökulsárnar verði færðar úr verndarflokki yfir í biðflokk í meðferð þingsins á rammaáætlun 3.“

Hér stend ég nú á Alþingi sjálfu með tillögu meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar í höndunum sem leggur til að færa Héraðsvötnin, jökulsárnar, úr verndarflokki í biðflokk og óvissuna, einnig Kjalölduveitu í efri hluta Þjórsár og fleiri náttúruperlur sem eru ekki á góðum stað. Þarna eru stigin skref aftur á bak í íslenskri náttúruverndarbaráttu. Tillaga nefndarinnar um að færa Héraðsvötn í biðflokk stingur í stúf í ljósi ótvíræðs verndargildis jökulsánna og þeirrar aðferðafræði sem beitt er við mat á verndargildi. Niðurstaða nefndarinnar endurspeglar ekki þá faglegu niðurstöðu sem komist hefur verið að um verndargildi ánna. Það á einnig við um fleiri svæði. Að slíku nefndaráliti get ég ekki staðið, að tillögu að slíkri rammaáætlun get ég ekki staðið eða að hún nái fram að ganga. Ég vil samt halda því til haga að einnig er jákvæð og mikilvæg skref að finna í tillögunni sem færa okkur fram veginn á öðrum stöðum í náttúruverndarbaráttunni, eins og félagi minn og náttúruverndarsinninn hv. þm. Orri Páll Jóhannsson fór hér yfir áðan og hann á stóran þátt í að ná fram. Það eru sigrar sem einnig þarf að varðveita og fylgja eftir og sækja fleiri. Það er hins vegar dapurlegt að ekki skuli mega finna sterkari náttúruverndartaug hjá gömlu flokkunum tveimur, Framsókn og Sjálfstæðisflokki. Við eigum ekki að samþykkja framtíðarsýn fortíðarafla sem felur í sér gjörnýtingu íslenskra vatnsfalla og jarðhitasvæða. Við vitum hvað við framleiðum mikla orku, sóum mikilli orku. Það er hægt að gera svo miklu betur án þess að fara eyðandi hendi um íslenska náttúru. Saman erum við ein öflug náttúruverndarhreyfing, þið sem eruð hér úti núna og mótmælið, hvar sem þið eruð. Megi svo alda vitundarvakningar vaxa og dafna og skila okkur inn í framtíðina fyrir börnin okkar, komandi kynslóðir og náttúruna sem sannarlega á sig sjálf.

Hér stend ég og get ekki annað en staðið áfram með fólkinu mínu sem hefur háð með mér baráttuna fyrir verndun jökulsánna í Skagafirði, fólkinu sem kaus mig til starfa á Alþingi með þeim hugsjónum sem fönguðu mig í pólitíska baráttu, öllu því fólki sem hefur lagt náttúruverndarbaráttunni lið um land allt og treystir á mig hér og aðra sem hér starfa, fólkinu sem háir baráttu á öðrum stöðum á landinu af sama eldmóði, en ekki síst að standa með náttúrunni sjálfri. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)