áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða mjög umdeilt mál um vernd og orkunýtingu landsvæða, rammaáætlun svokallaða. Ég ætla ekki að fara út í einstaka atriði, hvað eigi að virkja og hvað ekki, en maður hefur á tilfinningunni að verið sé að teygja ákveðna hluti út fyrir verndarsvæði til þess að geta kallað þá öðru nafni, svo að hægt sé að gera það sem var búið að taka út af dagskrá og átti ekki að framkvæma. En hvar eigum við að standa og með hverjum eigum við að standa? Jú, við eigum að standa með náttúrunni. Hvers vegna? Okkur ber skylda til að sjá til þess að reyna að halda náttúrunni við þannig að við skilum henni til afkomenda okkar í svipuðu ástandi og við fengum hana. En getum við það? (Gripið fram í: Nei.) Nei, langt því frá. Ég er af þeirri kynslóð að hafa séð, frá því að ég var lítill drengur í sveit til dagsins í dag, gífurlegar breytingar og gífurleg náttúruspjöll. Við þekkjum það í sveitum þegar verið var að grafa heilu skurðina út um allt til að ræsa fram mýrar. Við þekkjum það að ekki var borin mikil virðing fyrir náttúrunni og eins og málið er í dag er náttúran sem við sjáum á Íslandi gjörólík þeirri náttúru sem ég sá þegar ég var barn. Því miður er ekki hægt að laga stærsta hlutann af því sem hefur verið eyðilagt á nokkurn hátt. Ég er sannfærður um að við eigum að sjá til þess að allar svona breytingar, og allt sem við erum að eiga við í náttúrunni, séu gerðar í sátt og samlyndi. Við erum eiginlega stórfurðuleg þjóð að því leyti til að við hælum okkur af því að við séum með hreina náttúru og að við séum með góða hreina orku en á sama tíma erum við að láta skrá á okkur að við séum að nota kjarnorku, kolabrennslu, olíubrennslu. Hvers vegna? Jú, af því að við erum að selja kvóta til einhverra sóða úti í heimi. Við eigum að bera það mikla virðingu fyrir náttúru okkar að við nýtum hana eins vel og við getum, á eins umhverfisvænan hátt og við getum, og allra síst að selja hana til þeirra sem eru að menga með kjarnorku, olíubrennslu og kolabrennslu. Það er eitthvað svo, hvað á að segja, ódýrt að við skulum leyfa okkur svoleiðis hluti á sama tíma og við erum alltaf að hæla okkur af því að við séum með hreina og góða orku.
Annað sem við þurfum líka að taka tillit til, og ætti að vera löngu búið, er það furðulega mál að við erum ekki með dreifikerfið í lagi, að við skulum alltaf vera að byrja á öfugum enda. Mér skilst að það myndi stórauka orkuöryggi okkar ef við tækjum dreifikerfið og kæmum því í lag. Síðan hefði verið langbest að þessi rammaáætlun hefði fengið að bíða, hún hefði verið unnin betur; ef það hefði verið meiri sátt um hana og reynt að finna þá virkjunarkosti sem hagkvæmastir eru. Það eru ýmsir virkjunarkostir í boði og það er alltaf verið að uppgötva nýjar og nýjar leiðir Sérstaklega eigum við að horfa á þær leiðir sem valda minnstum umhverfisspjöllum og er eiginlega hægt að gera þannig að þegar þeir virkjunarkostir eru hættir í notkun sé hægt að ganga frá náttúrunni nákvæmlega eins og hún var í upphafi. Í dag er það helst vindorkan. Ég var nýlega í Færeyjum og sá að þar einbeita menn sér að sjávarfallsvirkjunum. Það er ýmislegt sem við getum farið að gera og fylgjast með og helst þá á þeim forsendum að umhverfisspjöll séu svo til engin og ef þau eru einhver að við getum þá alla vega lagfært þau þannig að það verði í lagi.
Ég ætla ekki að hafa þetta mjög langt en ég ætla að lýsa því yfir að ég mun ekki styðja þetta mál heldur mun ég sitja hjá í flestum tilfellum. Ég tel að margar breytingar hjá minni hlutanum séu mjög góðar sem ég mun fara í gegnum og sennilega styðja. En eins og þetta er sett upp hér er alveg útilokað að ég styðji þessa umhverfisstefnu.