152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[17:59]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta um.- og samgn. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Mig langaði að nota þær örfáu mínútur sem ég á eftir í þessu mikilvæga máli til að þakka hv. þingmönnum fyrir góða umræðu. Á engan er hallað þó að ég þakki sérstaklega hv. þm. Bjarna Jónssyni, oddvita Vinstri — hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. Ekkert sem hér hefur verið sagt í dag hefur breytt þeirri skoðun minni og okkar sem erum í minni hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar að það sé hið mesta óráð að færa Héraðsvötn og virkjunarkostina þar og Kjalölduveitu úr verndarflokki í biðflokk samkvæmt áætluninni. Engin rök hafa verið færð fram hér. Engin rök hafa verið færð fram af meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Ég biðla til hv. þingmanna að íhuga það nú af fullri alvöru, hvar sem þeir eru í flokki, að styðja breytingartillögu um að þessir kostir verði áfram í verndarflokki. Hún hefur verið flutt og verður á dagskrá við afgreiðslu málsins á morgun og ég ætla að leyfa mér að vona að hægt verði að samþykkja hana þannig að við gerum ekki þau hrikalegu mistök að færa þessa kosti í Héraðsvötnum og Kjalölduveitu úr verndarflokki, þangað sem þeir voru settir af verkefnisstjórninni eftir faglega yfirferð, að bestu manna yfirsýn, með vísindalegri þekkingu, að við förum ekki að krukka í því hér á hinu háa Alþingi. Hér hefur gott fólk úr náttúruverndarhreyfingunni mætt til að brýna okkur til dáða í dag. Ég vil þakka fyrir það. Ég vil þakka fyrir það að oft áður höfum við sem hér störfum og höfum starfað átt því fólki allt að þakka í náttúruverndarbaráttuni. Ég vil ljúka máli mínu á að þakka þeim.