áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir ágæta umræðu um þetta mikilvæga mál. Við þekkjum forsöguna. Það var farið í þessa vinnu, sem almennt er kölluð rammaáætlun, með þá hugmynd, eins og kom ágætlega fram hjá hv. þm. Daða Má Kristóferssyni, að taka ákvarðanir út frá bestu mögulegu upplýsingum. Á bak við þessa vinnu liggur náttúrlega gríðarlega mikið magn af upplýsingum, margir faghópar sem hafa unnið þetta og síðan núna hv. þingnefnd. Það lítur út fyrir að við séum að klára þetta núna, sem er samt sem áður, virðulegi forseti, eins og hv. þingmaður vísaði til, auðvitað ófullkomin tilraun sem alltaf má bæta. Það hefur alltaf legið fyrir að það er síðan alþingismanna að taka ákvörðun með þessar bestu mögulegu upplýsingar fyrir framan sig. Hugmyndin var sú að þetta væri sáttaferli en ég held að engan hafi dreymt um að í svona málaflokki yrði almenn sátt eða algjör sátt um alla hluti þegar að þessu kemur. Það er, myndi ég ætla, ómöguleiki. Ég tel hins vegar að það sé skynsamlegt, eins og hér hefur komið fram hjá mörgum hv. þingmönnum og hæstv. forsætisráðherra og ég er sammála því sjónarmiði og við höfum lært það af þessu ferli, að það borgar sig að reyna ekki að taka allt í einu heldur eigi að taka þetta verkefni í smærri skömmtum.
Það er mjög mikilvægt hins vegar að við klárum rammaáætlun. Það hefur verið reynt núna í rúmlega áratug án árangurs vegna þess að það er engin ríkisstjórn sem hefur komið hér fram á Íslandi sem hefur ekki haft það á stefnuskrá sinni að nýta græna orku. Af hverju er það? Við höfum afskaplega góða reynslu af því og stöndum betur en aðrar þjóðir vegna þess að við erum með svo hátt hlutfall af grænni orku. Það hefur gert það að verkum, m.a. út af samningum við stóraðila sem við sóttumst eftir fyrir löngu síðan, að við höfum byggt upp raforkukerfi fyrir alla landsmenn. Við búum í tiltölulega stóru landi, fámenn þjóð, og það hefði verið afskaplega dýrt, ef ekki ómögulegt, ef við hefðum gert það með öðrum hætti. Í ofanálag koma núna enn þá sterkari rök fyrir því að nýta græna orku og fara í orkuskipti og það eru loftslagsmálin. Það er algerlega útilokað að við náum þeim háleitu markmiðum sem við höfum sett okkur, sem eru mjög háleit, að taka út bensín og dísil, án þess að við komum með græna orku í staðinn. Það er algjörlega ómögulegt og ég veit ekki til að neinum detti það í hug. En síðan er annað, af því að hér hafa menn rætt stórnotendur, að það er ekki hugmyndin þegar heimurinn fer í baráttu gegn loftslagsvánni að menn færi vandamálin á milli staða. Það er engin þjóð sem leggur málin upp með þeim hætti. Ef allir myndu fara þá leið að flytja sín mál til annarra landa þá myndi enginn árangur nást. Þá myndi loftslagsváin vinna fullnaðarsigur. Þetta er nokkuð sem ég taldi að allir vissu. Vegna þess að hér gekk hugrakkt fólk á undan okkur sem þurfti að taka pólitíska slagi út af því, sem fór hér í fyrstu tvö orkuskiptin, bæði varðandi rafveituna og hitaveituna, njótum við góðs af því. Og hvað hefur gerst hérna, virðulegur forseti? Sumir hér segja, sem aldrei var hugmyndin, að sérfræðingarnir og hóparnir sem unnu þessa vinnu, jafn góðir og þeir eru, ættu að ákveða þetta fyrir Alþingi Íslendinga. Það var aldrei hugmyndin. Aldrei.
Hv. þingnefnd kemur hér með breytingartillögur. Mér finnst svolítið vanta í upptalningunni þegar menn fara yfir hverjar tillögurnar eru. Hér er lagt til að af virkjunarkostunum í nýtingarflokki fari þrír virkjunarkostir yfir í bið. Ég, virðulegi forseti, skil ekki af hverju það er ekki minnst á það hér af þeim sem gagnrýna þessa tillögu. Ef menn eru á því að sérfræðingarnir eigi alltaf að ráða þessu þá vilja þeir væntanlega hafa Skrokkölduveitu áfram. Það er augljóst. Ég tel að það sé skynsamlegt, svo eitt dæmi sé tekið, að skoða það mál betur. Síðan eru virkjunarkostir sem fóru úr vernd í bið — ekki úr vernd í nýtingu heldur úr vernd í bið, til að skoða þau mál betur. Það eru tveir kostir, Héraðsvötn og Kjalölduveita, en undir Héraðsvötnum eru fjórir kostir. Síðan fer einn kostur, virðulegi forseti, úr bið í nýtingu. Það er Búrfellslundur. Þetta er eini virkjunarkosturinn sem fer í nýtingarflokk, sá eini. Það kemur mér á óvart ef menn halda því fram að meiri hluti hv. þingnefndar hafi ekki komið með fullnægjandi rök fyrir því. Menn geta verið ósammála þeim en að mæta hér, virðulegi forseti, og segja að það hafi ekki verið færð nein rök eða lítil rök finnst mér vera mjög ósanngjarn málflutningur. Síðan, virðulegi forseti, og einhvern veginn hefur enginn minnst á þetta, ég hef ekki alla vega heyrt það hér í ræðum þeirra sem gagnrýna þetta, þá eru hvorki meira né minna en 28 virkjunarkostir felldir út úr rammaáætlun. Það kemur til vegna þess að ég sendi bréf á Orkustofnun og bað þá vinsamlegast, vegna þess að þeir komu með þetta inn, að taka þetta út. 28 kostir, virðulegur forseti:
Kljáfossvirkjun, Hvítá við Norðurreyki, Reyðarvatnsvirkjun, Hverfisfljótsvirkjun, Kaldbaksvirkjun Haukholtavirkjun, Vörðufell, Hestvirkjun, Selfossvirkjun, Brúarárvirkjun, Núpsárvirkjun, Hafralónsá, efra þrep og neðra þrep, Hofsárvirkjun, Hraunavirkjun, bæði í Fljótsdal og í Berufirði, Blöndudalsvirkjun, Vatnsdalsá, Seyðishólar, Sandfell, Reykjaból, Sköflungur, Botnafjöll, Grashagi, Sandfell, Hveravellir, Bakkahlaup, Hrútshálsar.
Virðulegur forseti. Það liggur alveg fyrir, hefur alltaf legið fyrir, mun alltaf liggja fyrir að það eru fáir, ekki tveir Íslendingar sem eru algjörlega sammála í þessum málum. Ég held að nálgun flestra, ef ekki allra, sé þessi: Okkur finnst það skipta máli að ná loftslagsmarkmiðunum. Við teljum það skynsamlegt að vera hér með græna orku, endurnýjanlega orku í stað þess að vera með jarðefnaeldsneyti. Ég held að enginn vilji fara til baka með þá þróun. En á sama tíma viljum við fara vel með íslenska náttúru. Við erum meðvituð um verðmæti í víðernum og okkar fallegu náttúru. Við erum held ég öll að reyna að ná einhverju jafnvægi hvað þetta varðar. Það að ganga hér fram og gagnrýna menn, þá hv. þingmenn sem unnu þetta erfiða starf með þessum hætti, finnst mér ekki maklegt. Mér finnst þetta bera öll einkenni þess að hér hefur verið lögð mikil vinna í að reyna að finna jafnvægi, taka út ákveðna þætti og skoða þá betur. Út á það gengur tillagan. 28 virkjunarkostir út, 28. Síðan eru hér nokkrir kostir sem eru settir í bið og við ætlum að skoða þá betur. Einn í nýtingu. Út á það gengur þessi tillaga.
Virðulegi forseti. Það kemur líka á óvart og ég verð bara að spyrja af hverju þeir aðilar, sérstaklega í Samfylkingunni og Pírötum, sem ganga harðast fram ganga ekki harðar fram á sínum eigin heimavelli. Ég horfi á það sem Reykvíkingur hvernig er gengið fram í þeim málum þar. Ég hvet þessa áhrifamenn til þess að gera breytingar á fyrirætlunum sem snúa að ósnortinni strandlengju í Skerjafirði. Það er ekki bara að landfyllingin, eins og Umhverfisstofnun benti á, muni hafi neikvæð áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda að því leyti að þangbreiður sem binda koldíoxíð munu skerðast. Bæði Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun eru með málefnalegar og góðar ábendingar um að þessi landfylling muni hafa mjög neikvæð áhrif á græn svæði og á líffræðilegan fjölbreytileika. Þar er bent á, eðlilega, af því að við eigum ekki endalaust af ósnortinni náttúru og hvað þá ósnortinni strandlengju í Reykjavík, að það sé ekki skynsamlegt að fara í þessi áform svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Reyndar er hér í uppsiglingu stórt umhverfisslys. Byggingaráform á opnum svæðum — það er annað sem mér fyndist að það fólk sem hefur áhuga á náttúruvernd og umhverfismálum ætti að beita sér fyrir að snúa við.
Við sjáum sóknarfæri, virðulegi forseti, t.d. í samgöngum núna þegar allt bendir til þess að rafflug muni breyta og skapa jafnvel byltingu í almenningssamgöngum í landinu sem umhverfisvænni samgöngumáti sem verður keyrður áfram af endurnýjanlegum orkugjöfum með lægri rekstrarkostnaði. Það eru þá möguleikar á því að þetta verði raunverulegur valkostur og stærri valkostur fyrir okkur Íslendinga. Mér finnst, virðulegur forseti, að það sé eitthvað sem við eigum að beita okkur fyrir eða í það minnsta að líta á og skoða.
Menn hafa fyrst og fremst talað um rafmagnið hérna en það eru líka aðrir þættir sem við þurfum að hafa fulla athygli á. Það kemur fram í umsögn frá Orkuveitu Reykjavíkur, sem mælist til þess að þessi 3. áfangi sé samþykktur, að það liggi virkilega á þegar kemur að hitaveitunni okkar hér á höfuðborgarsvæðinu og fleiri stöðum. Það er áhyggjuefni ef við náum ekki að sinna þeirri þörf sem fyrirsjáanleg er því að öll viljum við, og hér hafa margar ræður verið haldnar um mikilvægi þess, bæta úr húsnæðismálum Íslendinga, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Við erum ekki að bæta úr húsnæðismálum ef við sjáum heimilum ekki fyrir heitu vatni. Svo einfalt er það. Það er ekki hægt að draga aðra ályktun þegar maður les hér umsögn Orkuveitu Reykjavíkur en að ein af forsendum þess að svo megi verða, ef ekki forsendan, sé að við klárum 3. áfanga.
Virðulegi forseti. Engin mannanna verk eru fullkomin, ekki einu sinni þingmál eða niðurstaða hv. nefnda. En ég vil nota tækifærið og þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir starfið og það verður ekki annað séð, eftir alla þá vinnu sem hv. þingmenn hafa lagt í þetta, en að hér hafi verið vandað til verka eins og hægt er. Þó svo alltaf megi gagnrýna einhverja hluti í margar áttir þá finnst mér ósanngjarnt að halda því fram að hér hafi ekki virkilega verið unnið af heilindum til að ná því jafnvægi sem nauðsynlegt er þannig að við náum loftslagsmarkmiðunum en á sama tíma verndum það sem við viljum vernda.