152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[20:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Maður notar ýmsar leiðir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og það er heimilt að gera það en það var engri spurningu beint til mín heldur lesnar upp spurningar sem varða einmitt þetta mál og voru sendar til ráðherra, þ.e. þessi fyrirspurn hv. þingmanns. Það sem við þurfum hins vegar að gera sem erum að fjalla um fjármál ríkisins, og við höfum oft rætt það hér í þessum þingsal, ekki síst ég og hæstv. forseti sem hér situr, eins og kemur fram í greinargerð með þessu máli, er að sjá þessa hluti endurspeglast betur fjármálaáætlun, við þurfum að sjá þá endurspeglast enn þá betur í fjárlögum. Stóra myndin kemur sannarlega fram í fjármálaáætlun. Það er kannski það sem mér finnst ég geta tekið út úr umfjöllun um stofnun nýrra ráðuneyta og uppstokkun Stjórnarráðsins, að það sé mikilvægt að við veitum aðhald, ekki síst, eins og við bendum hér á, þar sem hægt er að samnýta og gera miklu meira af því heldur en gert er í Stjórnarráðinu. Það eru allt of mörg síló, það er allt of mikið þannig að hver er með sitt á meðan ég held að mörg okkar a.m.k. sjái tækifæri í því að það sé hægt að vinna þvert á ráðuneyti með miklu fleira heldur en nú þegar er gert og meira að segja miklu fleira heldur en við gerum ráð fyrir hér. Það sem ég myndi vilja segja í framhaldi af minni ræðu áðan varðandi þetta mál er að það er okkar að ýta enn frekar við þeim, fá skýrar og greinargóðar upplýsingar um hvernig til hefur tekist og hvernig markmið um straumlínulagaðra Stjórnarráð ná fram að ganga.