152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[20:45]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Þetta mál er mjög gott dæmi um ákveðna pólitík, þá pólitík að velja bara þau rök sem henta málflutningi í hvert sinn, ekki endilega þau rök sem halda heldur bara kannski þau rök sem fljúga. Í desember síðastliðnum lagði forsætisráðherra fram stjórnartillögu sem samþykkt var á Alþingi af þingflokkum ríkisstjórnarinnar 26. janúar síðastliðinn. Í þeirri tillögu kemur fram að breytingarnar sem þar er fjallað um séu ekki síst fallnar til þess að, með leyfi forseta, „fella ósýnilega múra stofnanamenningar“.

Þar er talað um að breytingar stuðli að samvinnu, samráði og samhæfingu innan Stjórnarráðsins. Þetta eru mjög falleg orð og góð markmið. En í alvörunni, hvað liggur á bak við þetta? Mannréttindi, mannréttindasamningar og jafnréttismál eru flutt til forsætisráðuneytisins af því að það er „augljós samlegð með þeim málefnum í forsætisráðuneytinu“. Þetta eru rökin fyrir því að mannréttindi eigi heima í forsætisráðuneyti og „mannréttindamál spanna verksvið ráðuneyta þvert á Stjórnarráðið og sveitarfélög landsins“ eins og stendur í ályktun forsætisráðherra.

En nú er persónuvernd líka mannréttindamál og spannar verksvið allra ráðuneyta og sveitarfélaga landsins en samt eru persónuverndarmál í dómsmálaráðuneytinu. Sömu rök, önnur niðurstaða. Og hvað með 9. liðinn, almennar umræður í starfsemi hins opinbera, sbr. forsetaúrskurð nr. 6/2022? Spannar það ekki líka verksvið allra ráðuneyta? Það er samt fjármálaráðuneytið sem sér um það verksvið. En loftslagsmál, miðað við markmið um forgang þeirra og nauðsyn þess að það sé brugðist við á öllum verksviðum sem vettlingi geta valdið? Eitt verkefni fer frá forsætisráðuneytinu en það er að framfylgt sé lögum og reglum um undirbúning stjórnarfrumvarpa sem er einmitt gert í öllum ráðuneytum. Rökin fyrir því að slíkt verkefni, sem spannar verksvið allra ráðuneyta, sé flutt frá ráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins eru að verið sé að fylgja danskri fyrirmynd. Það eru einhver ný rök sem eru dregin, mjög klassísk rök, bara svona eins og Norðurlöndin gera, frændur okkar, þau vita betur og meira og þá ætlum við að flytja inn allt sem þau gera af því að það er sjálfkrafa rétt. Þarna er augljóslega verið að velja rök sem henta niðurstöðunni en ekki rök sem halda.

Þetta er tilfærslufjárauki. Í þeim fjárauka sem er fjallað um hérna birtast okkur þær fjárhagslegu tilfærslur sem fylgja þessari ákvörðun um endurskipulagningu ráðuneyta. Meiri hluti nefndarinnar ítrekar að markmiðið með breytingunum sé, með leyfi forseta, „að tryggja að Stjórnarráðið verði sem best til þess fallið að takast á við nýjar áskoranir sem við er að etja hverju sinni og ný og breytt verkefni í takt við þarfir hvers tíma.“

Þetta bergmálar svipað orðalag úr þingsályktun um breytta skipan ráðuneyta en í greinargerð með þeirri tillögu er sérstaklega vísað í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um orsakir falls íslensku bankanna, með leyfi forseta, „sem varpaði ljósi á alvarlega veikleika í íslensku stjórnkerfi, ekki síst að því er varðaði skort á samhæfingu og samvinnu þeirra stjórnvalda sem fóru með skyld verkefni og getu stjórnsýslunnar til viðbragða og stefnumótunar.“

Það verður því að teljast verulega kaldhæðnislegt að eitt af því fyrsta sem gerist eftir þessar skipulagsbreytingar, sem eiga að stuðla að betri samvinnu, samráði og samhæfingu, sé að það klúðrist enn og aftur að selja banka, þrátt fyrir fullt samráð milli Bankasýslunnar og fjármálaráðuneytisins, að sögn Bankasýslunnar a.m.k. Það má því segja að þessi tilraun til að fella ósýnilega múra stofnanamenningarinnar hafi mistekist þegar fyrst reyndi á, eða þá að vandinn er kannski ekki hjá stofnununum heldur í pólitíkinni sem virðist ekki geta starfað eftir faglegum vinnubrögðum þegar mestu máli skiptir.

Því er það álit 2. minni hluta að sumar af þessum tilfærslum séu svo sem örugglega ágætar á meðan aðrar vekja upp ýmsar spurningar eins og fram kom í umræðum um stjórnartillöguna sem verið er að bregðast við með þessum fjárauka. Tillagan er hins vegar illa rökstudd og algerlega án mælanlegra markmiða til að hægt sé að meta hvort ávinningur verði af því að kosta til næstum hálfum milljarði króna á ári í þessar breytingar. Ábyrgðin á þessum aðgerðum er algerlega í höndum ríkisstjórnarinnar og þingmanna stjórnarflokkanna. Ég hafna því algerlega stjórnartillögunni um breytta skipan ráðuneyta og er enn mótfallinn þessum aukakostnaði og tilfærslum þannig að ég mæli með því að þessu máli verði einfaldlega hafnað.