152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

áhafnir skipa.

185. mál
[21:14]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp gekk til nefndar milli 2. og 3. umr. vegna þess að Alþingi barst neyðarkall frá þeim sem standa vörð um hagsmuni fólksins sem skipar áhafnir skipa. Félag skipstjórnarmanna, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Sjómannasamband Íslands og aðstandendur Slysavarnaskóla sjómanna og Skipstjórnarskólans sendu bréf til Alþingis og vöruðu við atriðum í frumvarpinu, sögðu þau þess eðlis að ekki bæri að samþykkja málið. Málið var þess vegna kallað aftur til nefndar og við funduðum í umhverfis- og samgöngunefnd á laugardaginn var, sjómannadagshelgina sjálfa. Á fund nefndarinnar mættu, eins og fram kom í ræðu framsögumanns meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar, Árni Bjarnason og Árni Sverrisson frá Félagi skipstjórnarmanna og Guðmundur Helgi Þórarinsson frá Félagi vélstjóra og málmtæknimanna.

Ég veit ekki alveg hvernig á að lýsa umræðum þarna þar sem við virtumst öll vera sammála um að það þyrfti að ná betur utan um þau atriði sem gestirnir lögðu áherslu á. Það sem greindi á milli þeirra sem standa að meirihlutaáliti og okkar sem stöndum að áliti minni hluta nefndarinnar var að við í minni hlutanum viljum ekki samþykkja lögin án þess að vera búin að ná utan um þessar áhyggjur, á meðan meiri hlutinn treystir því að þetta leysist einhvern tímann í framtíðinni í samtali á milli ráðuneytis og þessara félaga. Ég er bara ekki svo bjartsýnn.

Svo að ég hætti að tala hér frá eigin brjósti og geri grein fyrir nefndarálitinu, sem auk mín standa að þau hv. þingmenn Helga Vala Helgadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, auk Jakobs Frímanns Magnússonar áheyrnarfulltrúa sem lýsir sig fylgjandi álitinu, þá eru sjónarmiðin sem komu fram frá þessum félögum sex talsins.

Þar er talað um nauðsyn þess að mönnunarskírteini verði gefin út fyrir fiskiskip eins og önnur skip til að koma í veg fyrir að fækkað sé í áhöfn á kostnað öryggis, hvíldar og vinnuálags. Þarna erum við að tala um grjótharða baráttu milli sjómanna og útgerða um sparnað í rekstri, eitthvað sem þarf að ná almennilega utan um. Það er einhver ágreiningur í nefndinni um það hvort sjómannalögin eigi að fjalla um þetta frekar en þessi lög um áhafnir skipa. Mér finnst það bara ekki endilega skipta öllu máli því að við sem löggjafi horfum yfir allt lagasafnið og eigum að beita því til þess að standa vörð um réttindi þeirra sem lögin fjalla um.

Annað atriði var andstaða þessara aðila við að undanþágu- og mönnunarnefndir verði lagðar niður og hlutverkið falið starfsfólki Samgöngustofu, enda sé nauðsynlegt að fagaðilar fái að koma að veitingu þessara undanþága og frávika frá mönnun. Um þetta fjölluðum við í 2. umræðu. Breytingartillaga þess efnis hlaut ekki brautargengi, því miður.

Það er lagt til að útivistartími smáskipa verði að hámarki 14 tímar með skertri mönnun. Þar er lýst andstöðu við heimild háseta til að gegna starfi stýrimanns, andstöðu við að leyfilegt verði að komast hjá því að hafa vélstjóra í smáskipi og andstöðu við að eigandi báts geti verið einn á sjó lengur en 14 tíma, enda sé það mikilvægt öryggisatriði sem varði ekki bara eigandann sjálfan heldur alla sjófarendur og gangi jafnframt gegn siglingareglum og lögum um hvíldartíma sjómanna.

Við í minni hlutanum tökum í sjálfu sér ekki afstöðu til allra þessara álitaefna en okkur þykir ljóst af umræðunni að hagsmunaaðilum hafi ekki verið veitt tilhlýðileg áheyrn né hafi verið komið nægilega til móts við sjónarmið þeirra sem starfa í áhöfnum skipa við gerð frumvarpsins. Það er í sjálfu sér alvarlegur ágalli við meðferð málsins. Álitaefnin sem enn þá standa út af eru það umfangsmikil og snúast um slíka grundvallarhagsmuni þeirra sem vinna um borð í skipum að við í minni hlutanum teljum bara ekki forsendur til að afgreiða málið með fullnægjandi hætti á þeim tíma sem eftir er af þessu 152. löggjafarþingi. Sá tími núna er tæpur sólarhringur ef allt fer að óskum.

Hins vegar bendum við á að frumvarpið er búið að fara í gegnum 2. umræðu. Það er búið að fara í gegnum heilmikla þinglega meðferð og hér hafa verið afgreiddar breytingartillögur meiri hluta á ýmsum tæknilegum atriðum í frumvarpinu þannig að við erum með dálítið góðan grunn að áframhaldandi vinnu ráðuneytisins sem væri þá hægt að nota til að flýta þeirri vinnu sem er fram undan og leggja málið bara aftur fram í sátt í haust, klára það bara með hraði þá.

Ég veit ekki hvort afstaða okkar í minni hlutanum hafi litast af tímasetningunni, af sjómannadeginum sem var í fyrradag, og að þetta mál á sér einhvern veginn stað innan nefndarinnar sitt hvorum megin við þann dag. En við tökum fram í nefndarálitinu að það eru kaldar kveðjur sem meiri hlutinn sendir sjófarendum daginn eftir sjómannadag með því að leggja til þessa óbreyttu afgreiðslu málsins vegna þess að hér gafst tækifæri til að hlusta á það sem við teljum vera réttmæta gagnrýni fagfélaga sjófarenda varðandi grundvallarlöggjöf þeirra sem stunda sjósókn og standa með hagsmunum þeirra. Þess í stað velur meiri hlutinn að skella skollaeyrum við ákalli frá þessum hagsmunaaðilum sjómanna. Við í minni hlutanum getum ekki tekið þátt í slíkri afgreiðslu og leggjum því til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að eiga samráð við hagsmunasamtökin, það samráð sem er nauðsynlegt til að ná sáttinni sem er svo mikilvægt að ríki við þá hópa sem löggjöfin fjallar beinlínis um.

Svo mörg voru þau orð, herra forseti.