sveitarstjórnarlög.
Herra forseti. Ég vil gera hér stuttlega grein fyrir breytingartillögu sem fram er komin við þetta frumvarp frá hv. þm. Pírata, Birni Leví Gunnarssyni. Breytingartillagan byggir á frumvarpi, sem þingmenn Pírata hafa lagt fram að mér telst til sex sinnum, sem snýst um að skýra og auka getu sveitarfélaga til að kalla til borgarafundar annars vegar og til þess að halda íbúakosningar um einstök mál hins vegar. Breytingin snýr að 108. gr. sveitarstjórnarlaga, fyrstu tveimur málsgreinum þar. Annars vegar er það 1. mgr. 108. gr. laganna þar sem er kveðið á um að ef minnst 10% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélagi óska borgarafundar skuli sveitarstjórn verða við því svo fljótt sem unnt er.
Breytingartillaga hv. þingmanns kveður á um að bæta við nýjum málslið, svohljóðandi: „Sveitarstjórn er heimilt að ákveða lægra hlutfall í samþykkt um stjórn sveitarfélags.“
Það snýst í rauninni um það að sveitarstjórn sem vill gera íbúum auðveldara að boða til borgarafundar, vill nánast hvetja íbúana til að vera virkari í því að beita þessu tæki, geti gert það.
Hin tillagan snýr að 2. mgr. sömu greinar laganna, en í þeirri málsgrein er kveðið á um að 20% kosningarbærra íbúa í sveitarfélagi geti óskað eftir íbúakosningu um einstök málefni. Þá er sveitarfélagi skylt að verða við þeirri ósk eigi síðar en ári frá því að óskin berst. Hlutfallið er lágmarkshlutfall samkvæmt lögum en í ákvæðinu er heimilt að ákveða hærra hlutfall í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins en þó aldrei hærra en þriðjung þeirra sem hafa kosningarrétt. Breytingartillaga hv. þingmanns snýst um að í stað þess að heimila sveitarstjórn að kveða á um hærra hlutfall til að knýja fram íbúakosningu um einstök málefni þá sé einfaldlega hægt að kveða á um annað hlutfall, af því að sumar sveitarstjórnir gætu viljað lækka þennan þröskuld. Aftur: Sveitarstjórn sem vill hvetja íbúa sína til lýðræðislegs aðhalds til þess að jafnvel ögra stjórnvöldum gæti sagt: Við viljum bara lækka þessi 20% niður í 10 eða 15% eða hvað það er, vegna þess að við viljum að íbúarnir í sveitarfélaginu geti tekið okkur á teppið ef við stöndum okkur ekki — eða hvað það er, þetta þarf nú ekki alltaf að vera neikvætt.
Þetta eru tvær einfaldar breytingartillögur sem snúa í rauninni bara því að sveitarstjórnir hafi aukið svigrúm til þess að ákveða þann þröskuld sem er fyrir íbúa sveitarfélaganna til að beita þessum verkfærum; borgarafundum og íbúakosningum og til þess að gera einfaldara að því leytinu að það er ekki verið að skikka sveitarfélög til eins eða neins heldur að bjóða þeim upp á það hafa í samþykktum sínum þá tölu sem þeim þykir henta sínu lýðræðislega samfélagi, sínu nærsamfélagi frekar en að ríkisþröskuldurinn eigi að vera þar sem öllu ræður.
Nú hef ég gert grein fyrir þessari ágætu breytingartillögu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar og langar þá rétt aðeins að nefna tvennt varðandi frumvarpið sem umhverfis- og samgöngunefnd hefur fjallað um frá innviðaráðherra varðandi íbúakosningar á vegum sveitarfélaga. Annars vegar er atriði sem er kannski dálítið kunnuglegt frá því að við vorum að afgreiða kosningalög hér fyrir ári, það er sama tilhneiging í þessu frumvarpi eins og í kosningalögunum að það er kannski óþarflega miklu vísað til ráðherra að útfæra í reglugerð án þess að búið sé um það með nógu skýrum hætti í lagatexta varðandi framkvæmdina um nákvæmlega hvernig hún eigi að líta út. Ég hef kannski ekki jafn þungar áhyggjur af því hér eins og í kosningalögum. Þetta er ekki jafn viðamikil heimild en það er umhugsunarefni að þetta sé við það að verða lenska í málum sem snerta framkvæmd kosninga.
Hins vegar vil ég benda á það sem fram kom við umfjöllun nefndarinnar varðandi rafrænu kjörskrána — bíddu nú við, kemur það ekki fram hér? Það kemur ekki fram í greinargerð meiri hlutans. Það er sú staðreynd að rafræn kjörskrá var samþykkt í kosningalögum fyrir ári. Hana átti að prufukeyra í sveitarstjórnarkosningum núna í maí en þjóðskrá náði ekki að koma því kerfi í tæka tíð þannig að engar sveitarstjórnarkosningar áttu sér stað með rafrænni kjörskrá í þingkosningum og það eru enn áhöld um það hvenær þjóðskrá geti orðið sér úti um slíkt kerfi.
Ég vil bara vekja athygli á þessu vegna þess að það er bagalegt að við séum að innleiða lög um rafræna kjörskrá en ekki sjá til þess að Þjóðskrá Íslands, framkvæmdaraðilinn, sé í færum með að framkvæma þau lög.