útlendingar.
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, sem varðar flutning milli ráðuneyta á þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti. Þá bárust tvær umsagnir um málið og er gerð nánari grein fyrir þessu í nefndarálitinu sem liggur frammi.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á þeim aðilum sem heimil er vinnsla persónuupplýsinga samkvæmt lögum um útlendinga. Útlendingastofnun hefur hingað til annast bæði vinnslu umsókna um alþjóðlega vernd og þjónustu við umsækjendur en nú flyst þjónusta við umsækjendur og móttaka þeirra til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Við framlagningu málsins var ekki búið að taka endanlega ákvörðun um það hver færi með þetta verkefni og því er vísað til þess í ákvæðum frumvarpsins að því stjórnvaldi sem fer með verkefnið verði veitt heimild til vinnslu persónuupplýsinga. Nú liggur fyrir að Vinnumálastofnun fer með verkefnið og kom þá til álita að kveða skýrt á um það í lagatextanum að það sé Vinnumálastofnun sem fái heimildina til vinnslu persónuupplýsinga en slík ábending kom einnig frá Persónuvernd. Slík breyting kallar þó á fleiri breytingar á lögunum sem nefndin telur nauðsynlegt að greina betur og kanna. Þá er mikilvægt að marka skýra stefnu um móttöku þessa viðkvæma hóps til framtíðar. Það er ekki efni eða markmið fyrirliggjandi frumvarps en nefndin beinir því til nýskipaðrar ráðherranefndar um málefni innflytjenda og flóttafólks að taka þetta til sérstakrar skoðunar og tryggja að sem fyrst verði tekin ákvörðun um hvaða stofnun eða stjórnvaldi verði falið þetta verkefni og leggja fram frumvarp þar um þar sem einnig verði gerð tillaga að uppfærslu ákvæða laganna um vinnslu persónuupplýsinga.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Eyjólfur Ármannsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Logi Einarsson og Kári Gautason. Þá er Sigmar Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, samþykkur álitinu.