tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. atvinnuveganefnd fyrir að hafa tekið þetta mál fyrir og gert á því ákveðnar breytingar. Ég sagði við það tilefni þegar málið kom hér inn að ég styddi heils hugar þau skilyrði sem voru sett fyrir þessari hækkuðu endurgreiðslu í frumvarpinu, sem voru þrjú. Verið var að tala um lágmarksframleiðslukostnað, hversu lengi verkefnin yrðu hér og þann fjölda starfsmanna sem þyrfti að vinna við verkefnin. Ég nefndi þá í minni ræðu að þessi viðmið væru ekki heilög að mínu áliti, það væri vel hægt að hnika einhverju til sem mér sýnist nefndin hafa gert. Ég get vel tekið undir þær breytingartillögur sem fram komu hjá nefndinni og liggja fyrir í þessu nefndaráliti sem hér var mælt fyrir á undan minni ræðu. Mér líst í sjálfu sér vel á það að hækka fjárhæðina úr 200 milljónum upp í 350 milljónir, sem undirstrikar það að undir eru kannski allra stærstu verkefnin.
Eins og ég hef áður sagt þegar ég hef lýst yfir stuðningi mínum við þau markmið sem verið er að reyna að ná með þessu regluverki þá leitar fjármagnið í þessum alþjóðlega geira gjarnan í þann farveg þar sem endurgreiðslur eru með þeim hætti að hagkvæmt er að leggja í stórverkefni á viðkomandi stað. Því snýst þetta um samkeppnishæfni landsins. Þótt ég sé almennt þeirrar skoðunar að atvinnugreinar eigi að standa sem mest á eigin fótum og það þurfi að gæta að ákveðnum jafnræðissjónarmiðum þegar verið að tala um alls konar ívilnanir og þess háttar hluti, þá er ég algerlega sannfærður um að þessi atvinnugreinin njóti ákveðinnar sérstöðu að því leytinu til að afleidd áhrif af svona ívilnunum eru svo mikil. Þetta er þess vegna eitt af því sem gæti sett svolítið sterka stoð undir atvinnugrein sem færi þá mjög vaxandi og yrði gríðarlega stór.
Ég vek líka athygli á að þetta er auðvitað partur af hinum skapandi greinum. Ég ætlaði að sjálfsögðu líka að nefna að ávinningurinn er síðan ákveðin landkynning, sem mér finnst skipta mjög miklu máli í þessu, vegna þess að það hefur komið fram í könnunum að mikill hluti þeirra ferðamanna sem hingað kemur fær hugmyndina að því að koma hingað í gegnum þessi verkefni sem menn hafa séð í sjónvarpi eða bíó. Mér finnst ávinningurinn af þessu vera býsna mikill og tek undir þessar breytingartillögur sem koma í gegnum vinnu nefndarinnar. Mér finnst fínt að nefndin hafi lagst vel yfir þetta og sé öll á málinu. Ég hef verið að halda því til haga að þetta sé atvinnugrein þar sem margir einyrkjar og minni fyrirtæki koma að verkefnum þegar þau koma til landsins. Þau fyrirtæki taka síðan oft að sér verkefni fyrir íslenska fjölmiðla og því yrðu ákveðin samlegðaráhrif á milli íslenskra ritstjórna og fjölmiðla og þeirra fyrirtækja sem starfa beint við að þjónusta þau fyrirtæki sem hingað koma með stærri verkefni. Þótt kannski sé erfitt að meta það í einhverjum beinhörðum krónum og aurum, þá held ég að ákveðin samlegðaráhrif séu þarna á milli sem gerir það að verkum að þessi breyting sem við ræðum hér mun styrkja svolítið hið íslenska fjölmiðlalandslag. Mér finnst það vera mjög mikill plús í þessu öllu saman.
Síðan finnst mér að það hefði átt að gera þetta talsvert fyrr. Talsvert var rætt um þetta á síðasta kjörtímabili en einhvern veginn náðist ekki sátt um að fara þá í þessa vinnu, því önnur lönd í kringum okkur hafa verið að hækka endurgreiðsluhlutfallið sem hefur haft þau áhrif að fjármagn hefur frekar leitað þangað en hingað til lands. Við höfum dæmi um að verkefni hafi styst hér á landi eða hreinlega farið frekar til annarra landa. Ég sé því ekkert nema mjög jákvæða hluti við að fara í þessa breytingu og árétta að mér finnst og sagði það skýrt þegar málið kom inn — þótt ég hafi ekki lagst mikið og nákvæmlega yfir úttektina á þessum breytingum hvað varðar það sem liggur fyrir í nefndarálitinu — að ekkert af þessu væri heilagt í mínum huga. Ég held að grunnhugsunin sé áfram sú sama og ég get ekki betur séð en að þingheimur ætti að sameinast um að samþykkja þetta mál. Ég er a.m.k. mjög á því að þetta sé hið besta mál fyrir ekki bara íslenska kvikmyndagerð heldur samfélagið allt.