152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

692. mál
[22:55]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Herra forseti. Mig langar að þakka framsögumanni nefndar fyrir ekki bara góða framsögu heldur einnig gott starf og öðrum nefndarmönnum í atvinnuveganefnd. Þetta frumvarp kom frekar seint inn til okkar en hefur sem betur fer verið unnið hratt og örugglega. Það hefur verið mjög gott hvað hæstv. ráðherra og ráðuneyti voru dugleg við að afla okkur upplýsinga og svara spurningum sem komu upp hjá nefndinni.

Það að fá kvikmyndir hingað til lands er ekki bara mikilvægt fyrir atvinnulífið heldur líka að sjálfsögðu fyrir menningarlífið. Það sem við kannski gleymum oft að hugsa um er hversu frábær auglýsing það er fyrir íslenskt land að verið sé að nota hina fallegu náttúru sem við eigum í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem hundruð milljóna manna horfa á. Við megum ekki gleyma því að áður en Covid byrjaði voru tekjurnar af ferðamennsku á Íslandi meiri en við fáum af fiskinum okkar, öllum áliðnaðinum og öllum þeim iðnaði sem við erum með. Það er líka mjög athyglisvert að heyra frá Ferðamálastofu að um 40% þeirra sem koma hingað til lands nefna það að hafa séð Ísland í kvikmynd eða sjónvarpsþætti sem eina af ástæðunum fyrir því að hugmynd hafi kviknað um að koma til Íslands. Gjaldeyristekjur af ferðamönnum voru árið 2019 um 550 milljarðar kr. Kannski getum við ekki alveg sagt að 40% af því séu vegna þess að fólk sá kvikmyndir, en jafnvel þótt það væru bara 10 eða 5% þá erum við að tala um stórar upphæðir í gjaldeyristekjum. Það er sérstaklega mikilvægt að fá svona stórverkefni inn vegna þess að þau búa til tækifæri þar sem fólk sér Ísland ekki bara í nokkrar mínútur í einni bíómynd heldur kannski aftur og aftur í hverjum þættinum á fætur öðrum, svo ekki sé talað um hvað þetta skapar mikla atvinnu og afleidd vöru- og þjónustukaup víða um land.

Mig langar að ljúka þessu með því að þakka nefndinni aftur fyrir gott samstarf um þetta. Það er mín trú, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson orðaði það, að þetta muni ekki bara hafa góð áhrif á stórverkefni og erlend verkefni heldur líka á íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþætti, sem við höfum séð að eru orðin meira en lítið samkeppnishæf á undanförnum árum á hinum alþjóðlega markaði.