stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti í 569. máli, um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (framlenging bráðabirgðaákvæða). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum til bráðabirgða í lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2019, þess efnis að ákvæði sem varða skattfrádrátt nýsköpunarfyrirtækja vegna starfsemi þeirra árin 2020 og 2021 gildi einnig um starfsemi þeirra á árinu 2022. Þá eru lagðar til lækkanir bæði á frádráttarhlutfalli og hámarkskostnaði til útreiknings á frádrætti.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega: Flestir umsagnaraðilar hvöttu til þess að framlengja bráðabirgðaákvæði laganna óbreytt eða að hækka ætti frádráttarhlutfall og hámarkskostnað umfram það sem gert er ráð fyrir í núgildandi bráðabirgðaákvæði. Fyrir nefndinni kom fram að hugvit og nýsköpun væru að verða að styrkri stoð í hagkerfi Íslands. Nú starfi um 12.000 manns í þessum iðnaði eða um 6% vinnandi fólks í landinu. Hugverka- og nýsköpunariðnaðurinn sé vaxandi útflutningsstoð sem byggist að miklu leyti á fjárfestingu í rannsóknum og þróun og það sé í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar að efla rannsóknar- og þróunarverkefni í því skyni að fjölga störfum og gera hugviti hærra undir höfði innan íslensks efnahagslífs. Fyrirsjáanleiki skipti miklu máli þegar komi að fjárfestingum í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi og að breytingar á hlutfalli styrkja, þótt ekki séu nema að litlu leyti, geti skipt sköpum þegar kemur að því að laða erlenda sem innlenda aðila að fjárfestingu í íslensku hugviti.
Nefndin ræddi mikilvægi greiningar á stöðu nýsköpunariðnaðarins hér á landi á vegum OECD sem nú er unnið að. Meiri hlutinn væntir þess að í framhaldi umræddrar greiningar verði mótuð heildstæð stefna um greinina til framtíðar. Að mati meiri hlutans er mikilvægt að mótuð verði stefna um nýsköpun líkt og gert er um annan samfélagslega mikilvægan iðnað svo að markmið og stefna Íslands á sviði rannsókna og þróunar sé skýr og raunhæf.
Þá kom fram að margir höfðu talið nær tryggt að úrræðið yrði framlengt óbreytt, enda vísað til þess í stjórnarsáttmála að ríkisstjórnin hygðist viðhalda endurgreiðslum vegna rannsókna og þróunar og ívilnunum til grænna fjárfestinga og efla grunnsjóði í rannsóknum, nýsköpun og skapandi greinum. Um mikilvæga stoð sé að ræða sem laði að fjárfestingar í rekstrarumhverfi sem reynist mörgum fyrirtækjum erfitt. Rannsóknir og þróun taki oft langan tíma en skili sér á heildina litið margfalt til baka til samfélagsins í formi skatttekna.
Einnig kom fram að mikilvægt væri að fram færi heildarúttekt á árangri verkefnisins. Telur meiri hlutinn brýnt að ráðist verði í slíka úttekt. Með henni megi stýra enn frekar með hvaða hætti fjármunir ríkisins nýtist til að efla rannsóknir og þróun á Íslandi. Meðal þess sem úttektin þarf að beinast að er að skilgreina betur hver skilyrði fyrir endurgreiðslum eru og efla getu Rannís til að fara yfir umsóknir til þess að tryggt sé að stuðningur í gegnum endurgreiðslur fari í það sem hann á að fara, þ.e. rannsóknir og þróun. Tryggja þarf að fastur kostnaður fyrirtækja verði ekki merktur liðnum nýsköpun og þróun. Einnig þurfi að liggja fyrir hver sé eigandi verkefnisins.
Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu þess efnis að frádráttarhlutfall samkvæmt 1. gr. haldist óbreytt frá því bráðabirgðaákvæði sem nú er í gildi en að hámarkskostnaður verði sá sami og lagður er til í frumvarpinu, eða 1.000 millj. kr. Telur meiri hlutinn slíka breytingu koma til móts við þau sjónarmið sem höfð voru uppi fyrir nefndinni, en jafnframt koma til móts við aukna kröfu um ábyrga stjórn ríkisfjármála í ljósi óvissu um efnahagsþætti, svo sem verðbólgu og vaxtahækkanir. Markmið skattfrádráttar vegna rannsókna- og þróunarverkefna er að efla rannsóknir og þróunarstarf og bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja. Þær ívilnanir sem felast í bráðabirgðaákvæðum laganna hafa skipt sköpum fyrir nýsköpunarfyrirtæki í þeirri efnahagslegu óvissu sem fylgt hefur heimsfaraldri kórónuveirunnar. Meiri hlutinn telur mikilvægt að samkeppnishæfni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja sé áfram tryggð eftir því sem dregur úr efnahagslegum áhrifum faraldursins hér á landi og á heimsvísu. Meiri hlutinn leggur því til, með hliðsjón af tillögum umsagnaraðila, að frádráttarhlutfall nýsköpunarfyrirtækja verði áfram 35 hundraðshlutar frá álögðum tekjuskatti þeirra árin 2021 og 2022 vegna útlagðs kostnaðar á rannsóknar- og þróunarverkefnum.
Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á 2. gr. frumvarpsins sem er tæknilegs eðlis og þarfnast ekki útskýringar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið fyrir.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Guðrún Hafsteinsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.