152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

569. mál
[23:06]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Ég er með nokkrar spurningar til hv. þingmanns og vek athygli forseta á því að það er eitthvert flökt á klukkunni hérna. Í fyrsta lagi langaði mig að spyrja út í fyrirheit stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þar sem fram kemur að bráðabirgðaákvæði með endurgreiðsluhlutfalli verði gert varanlegt. Nú les ég þetta frumvarp og hef auðvitað fylgt því í gegnum nefndina með hv. þingmanni, og fæ ekki séð að verið sé að gera þetta ákvæði varanlegt. Það er einungis verið að framlengja það um næsta ár og árið þar á eftir, sem vissulega er ekki varanleg breyting. Ég velti fyrir mér hvers vegna það hafi verið ákveðið að gera ákvæðið ekki varanlegt eins og stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar segir til um.

Síðan langar mig að spyrja um annað atriði sem snýr að því að lækka hið svokallaða þak á endurgreiðslum. Ég velti því bara upp hvaða rök liggi að baki þeirri ákvörðun að horfa frá því fyrirkomulagi sem verið hefur þegar heildarendurskoðun á málaflokknum stendur fyrir dyrum og hvort hv. þingmaður telji ekki að fyrirtæki sem hafa verið að nýta sér þessar heimildir hafi haft réttmætar væntingar um, miðað við þau orð sem er að finna í stjórnarsáttmála, að þakið héldist eins og það er.

Spurningar mínar til hv. þingmanns eru þríþættar. Í fyrsta lagi: Hvers vegna var ákveðið að gera ákvæðið ekki varanlegt eins og stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar segir fyrir um að skuli vera gert? Í öðru lagi: Hver eru rökin fyrir því að lækka þakið? Telur hv. þingmaður jafnframt ekki rétt að þau fyrirtæki sem hafa verið að nýta sér þetta úrræði alveg upp í þak hafi haft réttmætar væntingar um að þakið myndi haldast eins og það hefur verið?