stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegur forseti. Ég hef stundum heyrt því fleygt að það geti verið ágætt að vera lítið eða meðalstórt nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi en um leið og fyrirtækin fara að stækka og verða verulega stór, og þetta kom líka fram fyrir nefndinni, er umhverfið hér einfaldlega ekki samkeppnishæft við önnur lönd. Eitt af því sem gerir umhverfið á Íslandi ekki samkeppnishæft er þessi ófyrirsjáanleiki og óstöðugleiki í stefnumótun hjá stjórnvöldum. Þess vegna spurði ég hv. þingmann hvort hann teldi ekki svo vera að þessi fyrirtæki hefðu haft réttmætar væntingar um að þakið héldist óbreytt, burt séð frá því hvort hv. þingmaður og meiri hlutinn telji sem svo að þau þoli alveg að tapa þessum endurgreiðslum.
Varðandi það sem hv. þingmaður segir um þá vinnu að heildarendurskoðun sem á að fara í, þá er þetta samt ekki það sem kemur fram í stjórnarsáttmálanum. Í stjórnarsáttmálanum stendur ekki: Fyrst förum við í heildarendurskoðun og svo spáum við í það hvort við gerum þetta varanlegt, heldur stendur að endurgreiðsluhlutfallið verði gert varanlegt og að farið verði í heildarstefnumótun. Ég les það ekki öðruvísi en svo að það eigi að gera endurgreiðsluhlutfallið varanlegt og fara svo í heildarstefnumótun. Af þeim sökum vil ég líka velta því upp að það kemur væntanlega út úr þessari heildarstefnumótun að það þurfi að fara eftir þeim athugasemdum og áhyggjum sem Skatturinn hefur komið á framfæri varðandi það að hafa skýrari ramma utan um hvað telst rannsóknir og þróun og hvaða félög geta verið að nýta sér það hverjir raunverulegir eigendur verkefnanna eru. Ég spyr hv. þingmann: Hefði ekki verið rétt að fara í þetta fyrst til að reyna að ná fram þessum sparnaðarsjónarmiðum sem hv. þingmaður talar um, (Forseti hringir.) frekar en að valda óstöðugleika hjá þessum fyrirtækjum sem þau benda einmitt á að sé mjög skaðlegur fyrir þeirra rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni?