stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og kom fram bæði í framsögu minni og fyrra andsvari þá held ég að það sé mjög erfitt að hafa réttmætar væntingar um eitthvað sem telst til Covid-aðgerða, úrræða þar sem við vorum að bregðast við og styðja við fólk, heimili, fyrirtæki og atvinnulíf í þessum heimsfaraldri sem stóð hér yfir í rúm tvö ár.
Varðandi framtíðina og fyrirsjáanleikann þá get ég alveg tekið undir með hv. þingmanni um að það sé nauðsynlegt til framtíðar að við séum með þennan fyrirsjáanleika. Það kom mjög skýrt fram hjá þeim sem komu fyrir nefndina að slíkur fyrirsjáanleiki væri nauðsynlegur. Líkt og kom fram í svari mínu við fyrra andsvari þá erum við að bíða eftir þessari úttekt frá OECD sem nú er unnið að, einmitt til þess að geta mótað heildstæða stefnu til framtíðar þannig að við höfum þennan nauðsynlega fyrirsjáanleika, akkúrat eins og hv. þingmaður nefndi í andsvari sínu, sem ég tek algerlega undir að er nauðsynlegur fyrir þessa mikilvægu atvinnugrein.