152. löggjafarþing — 90. fundur,  14. júní 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

569. mál
[23:19]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P):

Forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, sem undirritaður var 28. nóvember 2021, má finna fyrstu áherslurnar í málaflokknum Iðnaður og nýsköpun, sem hljómar svo:

„Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar verða framlengdar og farið yfir framkvæmd þeirra og eftirlit. Tímabundin hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna kostnaðar sem fellur til við rannsóknir og þróun verður gerð varanleg.“

Með frumvarpi þessu hefur ríkisstjórnin hins vegar lagt til að hætt verði við að gera ákvæðið varanlegt og þess í stað verði ákvæðið framlengt tímabundið til ársins 2023 og frádráttur vegna rannsókna og þróunar lækkaður úr 35% í 30% fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Með frumvarpinu má því segja að ríkisstjórnin svíki hálfs árs gamalt loforð sitt gagnvart nýsköpunargeiranum og geri þar með atlögu að rekstrargrundvelli fjölmargra nýsköpunarfyrirtækja sem höfðu þegar gert áætlanir sínar á grundvelli loforðanna frá því í nóvember.

Rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja getur verið afar ófyrirsjáanlegt og er háð mörgum óvissuþáttum sem fyrirtæki þurfa að huga vel að í áætlanagerð sinni. Það er ólíðandi að einn stærsti óvissuþátturinn í rekstri slíkra fyrirtækja séu dyntir í ríkisstjórninni. Óstöðugleiki og handahófskenndar breytingar á löggjöf er varðar starfsemi nýsköpunarfyrirtækja geta verið verulega skaðlegar fyrir fyrirsjáanleika og áreiðanleika í áætlanagerð. Fyrirtæki sem verða fyrir lækkun á endurgreiðsluhlutfalli yrðu líklega að segja upp starfsfólki, jafnvel draga saman seglin og hætta við verkefni sem þegar væru komin af stað ef frumvarpið næði fram að ganga óbreytt. Það er því fagnaðarefni að meiri hlutinn hafi fallist á að gera breytingartillögu hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata, að sinni og færa hlutfallið aftur upp í 35% eins og ríkisstjórnin raunar lofaði.

Að því sögðu var það óforsvaranlegt af fjármálaráðherra að reyna að ganga jafn kröftuglega á bak orða sinna og til stóð með framlagningu frumvarpsins. Rökstuðningur fyrir lækkun endurgreiðsluhlutfallsins er takmarkaður í greinargerð með frumvarpinu. Þar segir einfaldlega að ívilnanir nái ekki eins langt og áður en það sé gert til þess að áætlaður kostnaður sé í samræmi við fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 og til að mæta kostnaði vegna hugsanlegrar fjölgunar umsókna nýsköpunarfyrirtækja til Rannís. Þannig var ráðherra í raun búinn að ákveða að ganga á bak orða sinna við gerð fjármálaáætlunar, án samráðs við fyrirtækin sem þó höfðu réttmætar væntingar um annað.

Í áliti meiri hluta nefndarinnar er fjallað um heildstæða stefnumótun í greininni til framtíðar, m.a. á grundvelli greiningar sem OECD vinnur nú að hér á landi. Þar að auki er stefnt að heildarúttekt á árangri verkefnisins um endurgreiðslu rannsókna og þróunar. 2. minni hluti tekur undir mikilvægi þess að ráðast í heildstæða stefnumótun í greininni en telur rétt að viðhalda óbreyttum hlutföllum sem meiri hlutinn hefur fallist á en einnig að viðhalda óbreyttu endurgreiðsluþaki þar til sú endurskoðun hefur átt sér stað og nýtt fyrirkomulag endurgreiðslna fest í lög.

Við slíka endurskoðun er einnig mikilvægt að líta til alvarlegra athugasemda sem skatturinn hefur gert varðandi mögulega misnotkun á kerfinu þar sem borið hefur á því að fyrirtæki hafi rukkað fyrir verkefni sem ekki geta kallast rannsóknir og þróun, mögulega vegna vanþekkingar eða af ásettu ráði. Skatturinn hefur einnig bent á aðrar glufur sem loka þurfi fyrir til þess að úrræðið nýtist með réttum hætti. Það er því mat okkar í 2. minni hluta að betur hefði farið á því að bæta úr þeim annmörkum sem framkvæmdaraðilar hafa bent á að séu á lögunum til að ná fram þeim hagræðingarsjónarmiðum sem ráðherra vísaði í að liggi að baki þessu frumvarpi. Þannig mætti spara án þess að grafa undan fyrirsjáanleika og rekstrarumhverfi stærri nýsköpunarfyrirtækja. Við endurskoðun regluverks er því mikilvægt að sporna við misnotkun kerfisins og ná þannig fram hagræðingu og koma í veg fyrir óhóflegar endurgreiðslur frekar en að innleiða lækkanir gagnvart fyrirtækjum sem höfðu réttmætar væntingar um að yrði ekki af.

Með frumvarpinu er lagt til að hámarkskostnaður vegna frádráttar frá álögðum tekjuskatti færist úr 1,1 milljarði í 1 milljarð. Er nauðsyn lækkunarinnar ekki rökstudd að neinu öðru leyti en með áðurgreindri tilvísun í fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027. Meiri hluti nefndarinnar leggur til að hámark greiðslnanna verði áfram 1 milljarður eins og lagt er til í frumvarpinu með vísan til sjónarmiða um aukna kröfu um ábyrga stjórn ríkisfjármála í ljósi óvissu um efnahagsþætti, svo sem verðbólgu og vaxtahækkanir. Það er engu að síður áréttað að ívilnanir sem felast í bráðabirgðaákvæðum laganna hafi skipt sköpum fyrir nýsköpunarfyrirtæki og það sé mikilvægt að samkeppnishæfni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja sé áfram tryggð eftir því sem dregur úr efnahagslegum áhrifum faraldursins hér á landi og á heimsvísu. Því verður ekki annað séð en að meiri hluti nefndarinnar viðurkenni mikilvægi styrkjanna fyrir samkeppnishæfni íslenskra nýsköpunarfyrirtækja og efnahagslegt mikilvægi þeirra en kjósi þó að lækka hámark þeirra með vísan til almennrar óvissu. 2. minni hluti telur hvergi hafa komið fram sannfærandi rök fyrir því af hverju nauðsynlegt sé að lækka hámark greiðslnanna og leggur því til að hámark greiðslna verði áfram 1,1 milljarður eins og verið hefur í gildandi lögum.

Annar minni hluti leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu: Að upphæðin fari úr 1 milljarði í 1,1.

Að þessu nefndaráliti stendur sú sem hér stendur og hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir.

Mig langar aðeins að gera sérstaklega athugasemd við þá ákvörðun að gera endurgreiðsluhlutfallið ekki varanlegt eins og lofað er í stjórnarsáttmála vegna þess að það gengur ekki að segja í stjórnarsáttmála að það eigi að setja og festa hlutfall í lög og sömuleiðis að það eigi að fara í heildarendurskoðun á þessum málaflokki en segja svo eftir á: Heyrðu, nei, við þurfum fyrst að fara í þessa heildarendurskoðun og svo getum við skoðað hvort það eigi að vera varanlegt. Hér er hlutum snúið á hvolf. Það stendur mjög berum og skýrum orðum að það hafi staðið til að gera endurgreiðsluhlutfallið varanlegt. Það er þessi hringlandaháttur, virðulegi forseti, sem ég er að vísa í að sé ekki góður fyrir rekstrargrundvöll fyrirtækja sem höfðu réttmætar væntingar um að þetta endurgreiðsluhlutfall yrði fest í lög án tímatakmarkana, hvað sem svo síðar kæmi út úr einhverri heildarendurskoðun. En nú sitja þau uppi með það að enn og aftur er verið að framlengja bráðabirgðaákvæði með algerri óvissu um hvort ráðherra mæti aftur á næsta ári og hugsi að hann geti sparað nokkrar krónur og aura með því að rífa rekstrargrundvöllinn undan nýsköpunarfyrirtækjum.

Þetta eru ekki góð skilaboð inn í þennan viðkvæma og mikilvæga geira hér á Íslandi, virðulegi forseti. Þetta eru ekki skilaboð sem auka traust á að það sé eitthvert mark á þessum stjórnarsáttmála takandi, þegar það tók ekki nema nokkra mánuði að svíkja skýrt loforð, og ég verð nú að segja að það eru ekki mörg skýr loforð í þessum stjórnarsáttmála en þetta er með þeim skýrari, og að það er alveg augljóst þar hvað stóð til. En korteri seinna stendur eitthvað allt annað til. Það er auðvitað ekki traustvekjandi, virðulegi forseti, fyrir gildi þessa stjórnarsáttmála í huga ríkisstjórnarinnar.

En ég vil taka undir þau orð sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson kom með hér áðan, mér finnst mjög gott að meiri hlutinn hafi ákveðið að standa fast á því að hækka endurgreiðsluhlutfallið úr 30 í 35 og standa þá a.m.k. tímabundið við gefin loforð í stjórnarsáttmála. Það er vel. En betur má ef duga skal. Það er ekki réttlætanlegt að lofa því að eitthvað skuli fest í lög en gera það svo ekki nema bara tímabundið, sér í lagi þegar slík lög beinast að fyrirtækjum sem þurfa augljóslega að gera áætlanir lengra fram í tímann en eitt ár í einu ef markmiðið er að vaxa og stækka og vera samkeppnishæf í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Og ég vil kannski árétta að það er alveg sérstaklega mikilvægt fyrir Ísland að vera með samkeppnishæft og stöðugt umhverfi fyrir nýsköpunarfyrirtæki vegna þess að eins og gestir nefndarinnar bentu margir á þá býr Ísland líka við ákveðna ókosti gagnvart samkeppnisfærni, þ.e. smæð landsins, mannfæð, óstöðugleiki íslensku krónunnar var líka nefndur. Ýmsir nefndu líka að það væri allt of hár launakostnaður á Íslandi og af þeim sökum þyrfti þá að vera enn betra umhverfi fyrir nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi en í löndunum sem við berum okkur saman við til að vega upp á móti þessum þáttum sem draga úr samkeppnishæfni landsins. Þess vegna, virðulegur forseti, mótmæli ég þessum hringlandahætti og þessu rugli í loforðunum sem gefin voru fyrirtækjum. Að því sögðu styð ég þetta frumvarp og ég styð að það muni ná fram að ganga. En ég legg til þessa breytingu og ég brýni fyrir meiri hlutanum að gera betur.