152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[00:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs (lágmarkstryggingavernd, tilgreind séreign o.fl.).

Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar er varða lífeyrissjóði, m.a. um hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs úr 12% í 15,5%, hækkun lágmarkstryggingaverndar úr 1,4% í 1,8% af iðgjaldsstofni á ári, breytingu á ákvæðum um tilgreinda séreign, heimild til að bjóða sjóðfélögum að breyta ráðstöfun hluta lágmarksiðgjalds til viðbótartryggingaverndar, jöfnun réttinda lífeyrisþega til greiðslna frá almannatryggingum og heimild til skattfrjálsar ráðstöfunar tilgreindrar séreignar til kaupa á fyrsta íbúðarhúsnæði

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Fyrirliggjandi frumvarp byggist að stórum hluta á lífskjarasamningi frá apríl 2019 og stuðningsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við þann samning. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur auk þess fram að lögfesta eigi 15,5% skylduiðgjald til lífeyrissjóða að höfðu samráði við aðila vinnumarkaðarins um útfærsluna. Um er að ræða brýnt mál sem er m.a. ætlað að ljúka samræmingu lífeyrisréttinda á öllum vinnumarkaðnum og stuðla að sjálfbærni lífeyriskerfisins þannig að hver kynslóð standi undir eigin lífeyrisréttindum.

Í gildandi lögum er lágmarkstryggingavernd sem lífeyrissjóður veitir 56% af meðalævitekjum miðað við 40 ára inngreiðslutímabil sem jafngildir 1,4% ávinnslu á hverju ári. Hækkun lágmarksiðgjalds eins og lagt er til í frumvarpinu úr 12 í 15,5% mun leiða til hærri réttindaávinnslu eða sem nemur um 72% af meðaltekjum miðað við 40 ára inngreiðslutímabil sem jafngildir þá 1, 8% ávinnslu á ári. Með lögfestingu á tilgreindri séreign er sjóðfélaga falið val um hvort hann vilji greiða 3,5% viðbótariðgjald inn í samtryggingu eða tilgreinda séreign. Ef sjóðfélagi velur ekki þá fer iðgjald hans sjálfkrafa í samtryggingu hans og myndar þá 1,8% ávinnslu. Ef iðgjald fyrir tilgreinda séreign er valið verður réttindaávinnslan 1,4%, eins og áður sagði. Fyrir yngri sjóðfélaga skiptir réttindaávinnslan mun meira máli og þá er einnig mikilvægt fyrir fólk sem er með skuldbindingar að vera með ríka réttindavernd ef áföll verða. Mikilvægt er að sjóðfélagar geri sér vel grein fyrir þessum mun og því taldi nefndin rétt að lífeyrissjóðurinn beri að tryggja upplýst samþykki þegar sjóðfélagi óskar eftir ráðstöfun skylduiðgjalds í tilgreinda séreign.

Í frumvarpinu eru einnig gerðar breytingar í þá veru að öll séreign mun koma til með að skerða greiðslur almannatrygginga nema viðbótarlífeyrissparnaður sem byggist á iðgjaldsstofni, 4% framlagi launþega og 2% mótframlagi launagreiðenda. Með öðrum orðum er það svo að í gildandi lögum skerðast lífeyrisgreiðslur almannatrygginga ekki ef lífeyrisþegi fær greiðslur til að mynda úr frjálsri eða bundinni séreign sem myndast af lágmarksiðgjaldi. Talið er að í dag séu um 800–1.000 milljónir árlega að fara til fólks sem er með þetta fyrirkomulag. Með öðrum orðum hefur fólk sem á háar fjárhæðir í séreign getað tekið út fullar bætur almannatrygginga þó að það sitji með tugi og jafnvel hundruð milljóna inn á bankareikning úr séreign. Þetta er að mínu mati mikið hagsmunamál.

Hér á landi eigum við Íslendingar öflugt velferðarkerfi. Lífeyriskerfið okkar er mikilvægur hluti velferðarkerfis enda stendur það undir velferð okkar að miklu leyti við starfslok. Íslenska lífeyriskerfið er orðið gríðarlega öflugt og til merkis um það var Ísland í fyrsta sæti á lista Mercervísitölunnar á síðasta ári yfir bestu lífeyriskerfi í heimi ásamt Danmörku og Hollandi. Það er mikilvægt að áfram verði unnið að því að styrkja stoðir íslenska lífeyriskerfisins og þetta frumvarp er liður í því.

Meiri hlutinn mælist til þess að við endurskoðun á reglugerð um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð verði kveðið með skýrari hætti á um ýmis hugtök sem virðast þarfnast frekari skýringa. Þá leggur meiri hlutinn til þá breytingu að skýrt verði tekið fram að lífeyrissjóðum beri að áskilja upplýst samþykki þegar sjóðfélagi óskar eftir ráðstöfun skylduiðgjalds í tilgreinda séreign. Er því lagt til að lífeyrissjóðum beri að kveða á um slíkt í samþykktum sínum.

Formaður vill þakka nefndarmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir mjög gott samstarf við vinnslu þessa frumvarps. Vísast að öðru leyti til umfjöllunar í nefndaráliti meiri hlutans sem leggur til að frumvarpið verði samþykkt með fyrrgreindri breytingu.

Undir álit meiri hlutans rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.