hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegi forseti. Þetta risastóra mál, sem snertir eitt stærsta hagsmunamál vinnandi fólks, lífeyrissparnaðinn, er lagt fram þegar aðeins örfáir dagar eru til þingloka og umræðan fer nú fram í skjóli nætur. Það var fyrst þriðjudaginn 31. maí sem efnahags- og viðskiptanefnd fékk fyrstu kynningu á þessu risastóra máli frá fjármálaráðuneytinu. Umsagnarbeiðnir voru sendar út 3. maí, sem var föstudagurinn fyrir hvítasunnu og frestur gefinn til miðnættis annan í hvítasunnu.
Þrátt fyrir þennan stutta frest yfir langa fríhelgi bárust 17 umsagnir. Tíminn til að kynna sér málið hefur því verið mjög lítill og þessi mál eru vægast sagt flókin. Lífeyriskerfið er svo flókið að það tekur langan tíma og mikla yfirlegu að skilja það að einhverju leyti þannig að tíminn sem var gefinn er alls ekki nægur. Því hefur verið til svarað að í þessu máli hafi verið unnið frá 2016 þannig að það hafi nú aldeilis hlotið næga umfjöllun, en í því samhengi vil ég minna á að hér á Alþingi, sem er að fara að samþykkja þessi afdrifaríku lög, eru 25 nýir þingmenn. Hvorki meira né minna en 40% þeirra sem eru að fara að greiða atkvæði um þetta afdrifaríka frumvarp eru nýir þingmenn. Því skal haldið til haga að þegar ég heyrði kynningu fjármálaráðuneytisins fannst mér þetta hljóma býsna vel og það skal sagt að sjálfsagt er margt í þessu frumvarpi til bóta. En það er fyrir ofan minn skilning og þekkingu á lífeyrissjóðskerfinu að skilgreina það, auk þess sem tíminn til að kafa ofan í það hefur vægast sagt verið af skornum skammti.
Síðan bárust umsagnir og við fengum gesti fyrir nefndina og þá fóru að renna á mig tvær grímur. Nefndinni bárust 17 umsagnir sem voru frá mörgum lífeyrissjóðum, verkalýðsfélögum og opinberum aðilum, eins og t.d. Seðlabankanum. Afstaða þessara aðila, hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð, byggist ekki endilega á sömu forsendum en í stuttu máli sagt þá skiptist afstaða þessara 17 umsagnaraðila þannig: Fylgjandi frumvarpinu voru tveir, á móti því voru 12 og þrír tóku ekki afgerandi afstöðu. Það skal tekið fram að af þeim 12 sem ég flokka á móti voru ekki allir sem óskuðu berum orðum eftir því að frumvarpinu yrði frestað eða endurskoðað, en ekki var hægt að lesa annað úr athugasemdum þeirra en að þeir væru mótfallnir frumvarpinu.
Þau sem ekki tóku afstöðu eru t.d. Hagsmunasamtök heimilanna, sem fjalla einvörðungu um réttinn til að ráðstafa séreign til húsnæðiskaupa. Samtökin leggja til að gildissvið úrræða fyrstu kaupenda til að nýta séreignarsparnað til öflunar húsnæðis verði rýmkuð þannig að þau nái einnig til þeirra sem ekki hafa átt húsnæði í þrjú ár í stað fimm ára eins og lagt er til í frumvarpinu. 1. minni hluti er fylgjandi þessu að svo stöddu enda hefur aldrei verið erfiðara fyrir fólk í þeirri stöðu að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Hann telur þó að það eigi ekki að verða að meginreglu að ganga í lífeyrissparnað til að brúa bil heldur verði að finna fleiri leiðir til að húsnæðiskostnaður geti orðið viðráðanlegur fyrir sem flest fólk án þess að ganga á lífeyrissparnaðinn.
Síðan gera Samtök lífeyrissjóða athugasemdir við vissar greinar en taka ekki afstöðu, enda skiptast sjóðirnir undir þeirri regnhlíf algjörlega í tvö horn.
Einnig fjallaði sameiginleg umsögn Sjómannasambands Íslands, Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Félags skipstjórnarmanna eingöngu um þá furðu að í 6. gr. frumvarpsins væri sett inn ótímasett bráðabirgðaákvæði sem undanskilur sjómenn, eina af öllum stéttum, frá þeim rétti að fá þetta 3,5% viðbótarframlag frá sínum vinnuveitanda, þar sem útgerðin hefur ekki ljáð máls á því í kjaraviðræðunum við sjómenn að hækka þetta hlutfall í 15,5% eins og gert hefur verið hjá öðru launafólki. Þetta er hluti af annarri og stærri umræðu og ætti eitt og sér að fá þingheim til að staldra við.
ASÍ og Samtök atvinnulífsins sendu inn sameiginlega umsögn og eru fylgjandi frumvarpinu ásamt BHM. Þrátt fyrir samþykki gagnrýnir BHM ýmislegt varðandi frumvarpið og í umsögn þeirra segir m.a. með leyfi forseta:
„Þó svo að BHM mæli nú með framgöngu frumvarpsins bendir bandalagið á að frumvarpið birtist nú í fjórða skipti í samráði stjórnvalda og er það til marks um þá miklu óánægju sem ríkt hefur um efni og aðdraganda þess meðal heildarsamtaka launafólks á opinbera markaðnum. BHM, BSRB og KÍ hafa margsinnis fordæmt þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í ferlinu og bent á að verulega hefur skort á samráð um málið sem felur í sér grundvallarbreytingu á skipan lífeyrismála á opinbera markaðnum.“
Gagnrýnin á skort á samráði kom reyndar fram í mjög mörgum umsögnum sem og í máli gesta efnahags- og viðskiptanefndar. Það er eitthvað sem þingheimur hlýtur að taka mark á þegar sú gagnrýni kemur úr jafn mörgum áttum og raun ber vitni.
Í sameiginlegri umsögn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins segir m.a. með leyfi forseta:
„Ofangreindar breytingar eru viðbrögð stjórnvalda við athugasemdum við fyrri drög að frumvarpi frá aðstandendum lífeyrissjóða utan samningssviðs ASÍ og SA. Sú málamiðlun sem í breytingunum felst gengur mjög langt og vonast ASÍ og SA til þess að þær verði til þess að tryggja víðtækan stuðning við frumvarpið.“
Það verður því miður að segjast að þessi sameiginlega von ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefur alls ekki gengið eftir. Það er ljóst að mikill ágreiningur er um ákveðna þætti frumvarpsins bæði innan verkalýðsheyfingarinnar og meðal lífeyrissjóðanna.
Af þeim sem sendu inn umsögn og eru á móti frumvarpinu í þessari mynd, eða óska eftir því að það sé unnið betur og/eða beðið eftir grænbók um heildarendurskoðun lífeyrissjóðakerfisins eru: Almenni lífeyrissjóðurinn, séreignasjóðurinn Lífeyrisauki, BRÚ lífeyrissjóður, BSRB, Eftirlaunasjóður FÍA, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Íslenski lífeyrissjóðurinn, Kennarasamband Íslands, Reykjavíkurborg, Verkalýðsfélag Akraness og Seðlabankinn.
— Já, Seðlabankinn setur sig á móti þessu frumvarpi. Í umsögn hans stendur m.a., með leyfi forseta:
„Það er mat Seðlabankans að æskilegra væri að breytingar af því tagi sem frumvarpið felur í sér yrðu hluti af víðtækari stefnumörkun um lífeyrismál og endurskoðun laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.“
Almennt hlusta stjórnvöld á rödd Seðlabankans og ég sé ekki hvers vegna ætti ekki að gera það nú, ekki síst þar sem andstaðan meðal hagaðila er jafn mikil og raun ber vitni. Þótt lífeyrissjóðirnir virðist flestir vera á móti frumvarpinu er það ekki alltaf af sömu orsökum og ég ætla mér ekki að reyna að skilgreina mismunandi afstöðu þeirra út frá ólíkum hagsmunum eftir því hvort um opinbera eða frjálsa sjóði er að ræða. Ég læt öðrum það eftir.
Ég bið forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá því hér á eftir mun ætla ég að ræða það sem ég tel alvarlegast varðandi þetta frumvarp. Meira um það síðar.