152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[00:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að bregðast hér í örstuttu máli við ræðu hv. 3. þm. Suðurk., Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þar sem hún nefnir sérstaklega og ávarpar það að það hafi margir sent efnahags- og viðskiptanefnd neikvæðar umsagnir vegna þessa frumvarps, tveir hafi verið með og 12 hafi verið á móti. Ég vil árétta að ein umsögn var sérstök því að það gerist ekki oft að Samtök atvinnulífsins og ASÍ, Alþýðusamband Íslands, sendi sameiginlega umsögn með máli en það gerðist í þessu máli. Ég vil árétta að innan ASÍ og SA starfa níu lífeyrissjóðir, eftir því sem ég best veit, þannig að þeir hefðu allir níu getað sent inn umsögn og þá hefði þessi tala ekki verið tveir heldur tíu. Það voru líka miklar umræður um það hjá nefndinni að þarna eru, eins og hv. þingmaður kom inn á, mismunandi sjónarmið. Við getum rakið þetta mál ekki bara aftur til ársins 2016 heldur allt aftur til ársins 2011. Þetta er búið að vera mikið í umræðunni. Þetta er búið að vera mikið í umræðunni hjá aðilum vinnumarkaðarins, hvort sem er almenna eða opinbera markaðinum, og ég fagna því mjög að þetta frumvarp sé komið hér til þingsins.