152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[00:28]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú í seinni hluta ræðu minnar, sem ég varð að skipta í tennt vegna samninga hér um ræðutíma, sem ég ætla aðeins að ávarpa þessa aðkomu ASÍ og Samtaka atvinnulífsins og ýmislegt sem því fylgir. Það er hins vegar ljóst að það er fullt af t.d. verkalýðsfélögum innan ASÍ sem ekki eru sátt við þessa samninga þótt ASÍ standi að þessu, þannig að ég veit ekkert um hvað gerðist með þessa lífeyrissjóði sem ekki sendu inn umsögn. Svo var náttúrlega líka mjög stuttur tími gefinn til umsagna og það getur vel verið að það hefði bara fullt af fleiri umsögnum komið ef tími hefði verið nægur. Og já, það er rétt að þetta er búið að vera í umræðunni lengi en engu að síður er það staðreynd að þetta eru gríðarlega flókin mál og 40% af okkur þingmönnum sem erum að fara að greiða atkvæði um þetta erum nýkomin að þessu máli og þetta kom fyrir örfáum dögum fyrir efnahags- og viðskiptanefnd og ég tel það bara ekki boðlegt.