hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég vil bara árétta það sem ég sagði í fyrra andsvari mínu, að þarna sendu ASÍ og SA sameiginlega umsögn. Það var sameiginlegur skilningur þar á milli gagnvart þessu frumvarpi. Þó svo við hefðum gefið allan heimsins umsagnartíma þá hefðu ekkert komið fleiri umsagnir vegna þess að þarna voru þessir sjóðir, sem eru á þessu samningssviði, sammála. Við erum ekkert að tala um eitthvert lítið mengi. Við erum að tala um 75–80% af vinnumarkaðnum sem sendu inn sameiginlega umsögn og voru sammála um að þetta mál þurfi að hafa framgang.