152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[00:30]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan þá kem ég til með að tala aðeins um aðkomu ASÍ og Samtaka atvinnulífsins að þessu og kannski líka lífeyrissjóðanna. Ég ætla ekki að fara í það efni allt hérna núna þó að það eigi kannski alveg við, það er bara lítill tími, en ég kem að því á eftir í ræðunni. En málið er, ASÍ sendir eitthvað inn en það er samt greinilegt að verkalýðshreyfingin, meira að segja fjöldi félaga innan ASÍ, er ekki sammála þessari útfærslu. Það fer ekkert á milli mála. Ég veit svo sem ekkert hvernig staðan er hjá þessum lífeyrissjóðum en það breytir því ekki að það er ekki eining um þetta innan ASÍ.