152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[00:31]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs. Að nefndarálitinu stöndum við Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fulltrúi Pírata í efnahags- og viðskiptanefnd. Við styðjum þá hækkun lágmarksiðgjalds og lágmarkstryggingaverndar sem mælt er fyrir um í frumvarpinu en við gjöldum hins vegar varhug við hvers kyns lagabreytingum sem eru til þess fallnar að veikja samtryggingarmátt lífeyrissjóðakerfisins. Við teljum líka að sú stefna ríkisstjórnarinnar, og stefna síðustu ríkisstjórna, að veikja hin hefðbundnu húsnæðisstuðningskerfi en heimila þess í stað skattfrjálsa ráðstöfun lífeyrissparnaðar inn á húsnæðislán hafi ekki reynst vel, enda þjóni þessi stefna fyrst og fremst tekjuhæstu hópunum hér á landi.

Eins og hér hefur verið komið inn á, hvetja Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins Alþingi eindregið til að samþykkja þetta frumvarp. Það hlýtur auðvitað alltaf að vega mjög þungt. Alþýðusamband Íslands eru stærstu heildarsamtök launafólks á Íslandi og verður aldrei gert lítið úr því. En það verður hins vegar ekki sagt að það ríki alger eining um efnisatriði frumvarpsins meðal stéttarfélaga almennt. Raunar hefur komið fram mjög hörð gagnrýni sem væri ábyrgðarlaust að hlusta ekki á og taka ekki alvarlega og bregðast ekki við með einhverjum hætti. Þá nefni ég kannski fyrst og fremst þau sjónarmið sem komu fram af hálfu BSRB og af hálfu Kennarasambands Íslands.

BSRB telur að frumvarpið skapi ójafnræði meðal lífeyrisþega, dragi úr vægi samtryggingarinnar. Kennarasambandið gengur svo langt að segja frumvarpið hugsanlega eina alvarlegustu aðför að jöfnuði í íslensku samfélagi sem gerð hefur verið. Þetta segir Kennarasambandið. Þegar svona gagnrýni kemur fram þá er kannski eðlilegt að bregðast við henni, a.m.k. ræða hana og svara henni með einhverjum hætti. Mér finnst það í rauninni ekki vera gert að neinu marki í nefndaráliti meiri hlutans, svona miðað við hvað þetta er hörð gagnrýni og frá aðilum sem við hljótum að bera virðingu fyrir og vilja hlusta á. Mér finnst að það hefði kannski mátt staldra aðeins við þetta.

Það kemur hliðstæð gagnrýni fram í umsögnum Brúar, lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, og í umsögn Reykjavíkurborgar þar sem er varað við því að með frumvarpinu sé aukið á aðstöðumun tekjuhárra og tekjulágra og að grafið sé undan samtryggingu.

Ég held að sé mikilvægt að taka fram að við í 2. minni hluta styðjum eindregið þá breytingu sem er lögð til í frumvarpinu á samspili lífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum og greiðslna úr almannatryggingakerfinu og hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar fór vel yfir áhrifin af því hér áðan. Það er óhætt að taka heils hugar undir með henni þar.

Ég held hins vegar að skilin milli gamla skerðingarfyrirkomulagsins og þess nýja þarfnist frekari skoðunar. Nú er mælt fyrir um það í 13. gr. frumvarpsins að hjá fólki sem hefur þegar safnað séreign af iðgjaldi lífeyrissjóðs sem býður upp á slíkt, skuli séreignin ekki koma til lækkunar á ellilífeyri, tekjutryggingu og ráðstöfunarfé ef einstaklingurinn hefur lífeyristöku fyrir 1. janúar 2023. En ef einstaklingur hefur lífeyristöku degi síðar þá skellur í rauninni hið breytta skerðingarfyrirkomulag á af fullum þunga og þá gagnvart allri þeirri séreign sem viðkomandi hafði safnað.

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni telur að í þessu kunni að felast ólögmæt afturvirk skerðing á lífeyrisréttindum sem muni kalla á málarekstur gegn ríkinu. Ég ætla ekki að taka afstöðu til þess hvort í þessu kunni endilega að felast ólögmæt eða afturvirk skerðing á eignarréttindum. En það var hins vegar ekkert fjallað um þessi álitaefni, það hefur í rauninni ekki verið unnið neitt lögfræðiálit á þessu við meðferð frumvarpsins í efnahags- og viðskiptanefnd. Svo ég komi nú formanni nefndarinnar til varnar og öðrum, er það kannski vegna þess að þetta er umsögn sem barst seint. En frumvarpið barst líka seint inn í þingið og umsagnarfresturinn var skammur þannig að þetta er sjálfskaparvíti stjórnarmeirihlutans og ríkisstjórnarinnar.

Ég er ekki sannfærður um að þetta frumvarp samrýmist að fullu yfirlýstri stefnu stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að jafna lífeyriskjör á vinnumarkaði, einfalda kerfið, draga úr flækjustigi, draga úr innbyggðri mismunun í því og það hefur ekki farið fram í raun nein heildstæð greining á áhrifum þeirra breytinga sem eru lagðar til svona út frá kyni, lífslíkum, ævitekjum. Ég hef ekki séð neina tryggingastærðfræðilega greiningu á þessu, sem maður hefði kannski búist við í ljósi þess hvað þetta frumvarp á sér í rauninni langa ævi þannig séð, þetta er í fjórða sinn sem það er lagt fram í einhverri mynd — og þó, í þriðja sinn. Það liggur heldur ekki fyrir neitt kostnaðarmat vegna útvíkkunar á úrræðum um skattfrjálsa úttekt lífeyrissparnaðar til kaupa á húsnæði á þessum þætti í frumvarpinu. Þar vil ég bara minna á að það hvíla ákveðnar skyldur á löggjafanum til að láta fara fram svona kostnaðarmat. Vísast þar til 129. gr. sveitarstjórnarlaga þar sem segir:

„Ef fyrirsjáanlegt er að tillaga að lagafrumvarpi, tillaga að stjórnvaldsfyrirmælum eða aðrar stefnumarkandi ákvarðanir af hálfu stjórnvalda ríkisins muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög skal fara fram sérstakt mat á áhrifum þeirra á fjárhag sveitarfélaga.“

Það hefur ekki verið gert. Og reyndar hefur ekki gefist tími til að bregðast við og leggjast almennilega yfir fjölmargar tæknilegar athugasemdir sem hafa komið fram og verið gerðar við einstök ákvæði.

Að öllu þessu virtu þá teljum við í 2. minni hluta að þetta frumvarp þarfnist frekari yfirlegu og dýpri umræðu og við getum ekki stutt það.