152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[00:40]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson fór rétt í þessu yfir þær athugasemdir sem við í minni hluta höfum við þetta frumvarp. Ég ætla í sjálfu sér ekki að fara yfir þau atriði öll aftur, mig langar bara að koma með nokkrar athugasemdir. Í fyrsta lagi vil ég árétta að þessi rosalega skammi tími sem við fengum til þess að afgreiða þetta stóra, flókna og viðamikla frumvarp er ekki ásættanlegur. Mér er eiginlega alveg sama hvaða ástand var í fjármálaráðuneytinu, þetta er ekki ásættanlegt. Það er ekki ásættanlegt að þingið fái tvær vikur til þess að vinna jafn viðamikið og mikilvægt mál sem þetta. En sér í lagi vegna þess að þegar þetta mál er kynnt fyrir nefndinni og miðað við sögu þessa máls þá er það rakið þannig að þetta var áður lagt fram í aðeins öðruvísi mynd. Það var ekki mikil sátt um það mál. Því var vísað af þáverandi efnahags- og viðskiptanefnd aftur til ríkisstjórnarinnar, ég vona að ég muni þetta alveg rétt, til þess að vinna það betur í náinni sátt með hagaðilum. Síðan kemur þetta aftur í þingið og við fáum að heyra: Jú, það er komin þokkaleg sátt um þetta. Svo hefst umfjöllun nefndarinnar og það kemur í ljós að það er bara alls ekki þokkaleg sátt um þetta og BSRB var t.d. bara ekki haft með í ráðum yfir höfuð, ekki af neinu viti a.m.k. Það sem ég upplifði var að það var sagt að þetta hefði farið í samráðsgátt eins og það væri einhvern veginn verið að reyna að ná sáttum með því að henda einhverju frumvarpi inn í samráðsgáttina og segja: Þið getið sent inn umsögn og við tökum kannski tillit til hennar og kannski ekki. Það er ekki virkt samtal, það er ekki verið að leitast eftir að ná sáttum í slíku ferli.

Það situr svolítið í mér þegar er talað um að reyna að sætta sjónarmið og að það eigi að vera verkefni ráðuneytisins og ráðherra að reyna að sætta sjónarmið, ólík sjónarmið, að þá sé málið tekið og talað við suma en alls ekki alla. Svo teljast það bara sættir á meðan málið er sett í samráðsgátt og þá hafi þeir sem ekki voru hafðir með í ráðum á sama hátt tækifæri til að láta ljós sitt skína. Það er ekki alveg sá andi sem mér finnst að eigi að vera í vinnu sem þessari sem snertir hagsmuni jafn margra og hefur jafn afdrifaríkar afleiðingar fyrir jafn marga og lífeyrisréttindi vissulega hafa. Ég vildi koma því á framfæri. Mér finnst þetta ekki boðleg vinnubrögð. Ég er alltaf eins og rispuð plata hérna vegna þess að það er náttúrlega allt of algengt að svona risa mál rjúki í gegn á lokametrunum. Ég segi ekki endilega að það eigi við með þetta mál, ég hef heyrt ágætar skýringar á því hvers vegna það kom svona seint þótt mér finnist þær ekki ásættanlegar eða nógu viðeigandi, en stundum upplifir maður jafnvel að mál séu mjög seint fram komin hreinlega til þess að þingið hafi mjög stuttan tíma til að vinna þau. En ég ítreka að ég er ekki að segja að það eigi við í þessu tilfelli.

Svo langar mig að tala um ákveðið nýmæli sem er í þessu frumvarpi sem er að gera lífeyrissjóðum kleift að ákveða hvort þeir vilji heimila lífeyrisþegum að 3,5% af lífeyrissparnaði þeirra fari í svokallaða tilgreinda séreign. Það sem er nýtt við þetta er að þessi tilgreinda séreign getur nýst að einhverju marki til kaupa á fyrstu fasteign eða til niðurgreiðslu á húsnæðislánum. Ég geri athugasemd við þessa nálgun. Mér finnst þetta ekki rétt pólitík. Í fyrsta lagi er það þannig, og þetta hefur verið víðsvegar gagnrýnt og það liggur í augum uppi hvers vegna, að það er búið að eyða allt of miklum fjármunum og púðri í það að dæla inn í eftirspurn eftir húsnæði á Íslandi og við sjáum afleiðingarnar af því hérna úti í samfélaginu. Það er ótrúlegur tími, orka og peningar sem hafa farið í það að keyra upp eftirspurn á markaði með aðgangi að lánsfé, með þvílíku úrræði eftir úrræði af hálfu stjórnvalda og reyndar Seðlabankans líka, en allt of lítið gert á framboðshliðinni og allt of lítið gert á félagslegu hliðinni, þ.e. í uppbyggingu félagslegs húsnæðis, stuðningi við lægri tekjutíundir til að eignast húsnæði á félagslegum forsendum og uppbyggingu á óhagnaðardrifnum íbúðum — ég á við óhagnaðardrifna uppbyggingu á íbúðum, klukkan er aðeins of margt fyrir mig til að fleygja öllum þessum hugtökum hérna fram. En það sem ég er að reyna að koma orðum að hérna, virðulegi forseti, er að það er röng forgangsröðun að finna enn eina leiðina til að dæla inn í eftirspurnarhliðina en vera ekki að gera neitt að ráði til að laga framboðshliðina.

Sömuleiðis finnst mér vond pólitík að vera alltaf að líta á það sem einhverja lausn að leyfa fólki að fara í ævisparnaðinn sinn til að eignast húsnæði eða jafnvel taka hann út, eins og stjórnvöld hafa verið að leyfa núna í áraraðir fyrir einmitt fátækasta fólkið, að taka út séreignarsparnaðinn sinn til að eiga fyrir mat og leigu og borga af því fullan skatt. Þetta er náttúrlega ömurleg pólitík. Við eigum alltaf að taka lán frá framtíðarsjálfinu okkar og þakka ríkisstjórninni fyrir það, takk, ég fékk að taka lán hjá sjálfri mér, mikið eruð þið góð. Þetta er eitthvað svo fáránlegt. Auðvitað væri miklu gáfulegra að hætta að dæla endalausum peningum í þá sem eiga nóg af peningum fyrir og í útgerðina o.s.frv. og nota þá peninga í að byggja hérna upp sterkt félagslegt húsnæðiskerfi og sanngjarnan og raunhæfan leigumarkað vegna þess að það eru ekkert allir sem vilja fjárfesta öllu sínu í steypu. Það er ekki þannig. Við vitum að það er stór hópur leigjenda sem myndi mjög gjarnan vilja vera á leigumarkaði ef það væri ekki þessi hræðilegi markaður hér, þannig að mér finnst þetta röng forgangsröðun. Mér finnst hún líka beinast að þeim sem síst skyldi að því marki að til þess að þessi sparnaður, þessi tilgreinda séreign, geti nýst í kaup á fyrstu íbúð þá þarf það að vera þannig að viðbótarlífeyrissparnaðurinn dugi ekki upp í eða viðkomandi sé ekki með viðbótarlífeyrissparnað. Við vitum að lægstu tekjutíundirnar eru margar hverjar ekki með viðbótarlífeyrissparnað vegna þess að þær hafa ekki efni á því að verða af þeim 2% sem þau þurfa að koma með á móti vinnuveitanda sínum til að fá þessi 4% á móti, sem er auðvitað gríðarlega ósanngjarnt og þýðir að þetta úrræði nýtist helst þeim sem ekki eiga séreignarsparnað til að nýta í fyrstu kaup eða niðurgreiðslu á húsnæðislánum sínum.

Þarna erum við sem sagt að bjóða lægstu tekjutíundunum upp á að gera ákveðið veðmál: Ókei, ég þarf að koma undir mig fótunum, ég þarf að komast inn á þennan hræðilega húsnæðismarkað sem er allt of hár og allt of óaðgengilegar og einhvern veginn verð ég að gera það og hér er alla vega eitthvað sem hjálpar mér. Það sem ég er að fórna á móti er að ef ég mögulega örkumlast í starfi þá hefur það gríðarleg áhrif á réttindi mín til framtíðar litið. Mér finnst þetta vont val sem við erum að gefa fólki og mér finnst mikilvægt að fólk sé frætt um hvaða afleiðingar svona val hefur. Mér finnst líka mikilvægt að aðrir hlutir en að leyfa fólki að taka lán hjá sjálfu sér séu reyndir þegar kemur að því að aðstoða fólk við að njóta þeirra grundvallarmannréttinda að hafa þak yfir höfuðið. Mér finnst það vond forgangsröðun. Mér finnst ekki að við eigum alltaf að vera senda fólk í sparibaukana sína fyrir eldri árin til að það geti eignast þak yfir höfuðið, öruggt þak yfir höfuðið vegna þess að við vitum að ef þú ert fastur á leigumarkaði á Íslandi er það ekki öruggt þak yfir höfuðið. Það er bara hreinlega þannig.

Mér finnst þetta atriði vanhugsað og mér finnst það vega að samtryggingunni sem á að gilda í þessu kerfi og ég er ósammála því. Mér finnst líka að við hefðum þurft miklu meiri tíma til að fara yfir þessi álitaefni. Ég hefði viljað getað spurt miklu fleiri spurninga, og ég var með margar spurningar, en þeirra sem ég spurði og ég hefði viljað getað kallað eftir frekari gögnum og greiningum. Eins og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson vísaði í í ræðu sinni þá gafst ekki tími og voru ekki fyrir hendi nákvæmar greiningar um áhrif þessa frumvarps á margvíslega þætti.

En hingað erum við komin og það er ýmislegt sem er ágætt í þessu frumvarpi eins og rakið hefur verið og mun ég og þingflokkur Pírata að sjálfsögðu styðja það sem við teljum gott. En ég geri alvarlega athugasemd við að geta ráðstafað tilgreindri séreign í kaup á fyrstu eign. Ég skil fullkomlega hversu freistandi það er að gera nákvæmlega það en það er ákveðin áhætta í því fólgin og það dregur úr samtryggingarmætti lífeyriskerfisins. Það er breyting sem mér finnst að hefði mátt bíða með þar til frekari og betri umfjöllun um a.m.k. þetta atriði hefði getað farið fram.

Að því sögðu þá mun ég styðja ýmis atriði í þessu frumvarpi og ég er sömuleiðis þakklát hv. nefndarmönnum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir gott samstarf í þessu máli og fyrir að hafa hraðar hendur. En ég endurtek að mér finnst það ekki boðleg vinnubrögð að koma með málið svona seint til nefndarinnar og vil hvetja hv. formann nefndarinnar til dáða við að skamma ráðuneytið vegna þess að það á að skamma þau í hvert skipti sem þau koma með mál svona seint inn til okkar til þess að kannski mögulega einhvern daginn hætti þau því. Auðvitað ætti bara ekkert að hleypa málum á dagskrá þegar þau koma svona seint inn (Gripið fram í: Heyr, heyr.) en við vitum hvernig það er. Það væri a.m.k. gott að þau fengju smá skömm í hattinn til að reyna að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig trekk í trekk eins og þetta gerir alltaf hérna.