hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða frumvarp um lögfestingu á lágmarksiðgjaldi til lífeyrissjóða upp á 15,5%. Hér hefur verið farið yfir margt og m.a. að það hafi ekki verið viðhöfð vönduð vinnubrögð í þessu máli og ég get bara tekið undir það. Ég er stundum hissa á því hvernig vinnubrögðin eru hérna, verið að dæla bara með engum fyrirvara — eins og bara í fjárlaganefndinni, þar var hent inn breytingum á síðustu metrunum og jafnvel eftir að fólk var farið í að skrifa álit þá koma stórar breytingar frá ríkisstjórninni um einhverjar aðgerðir til að bæta stöðu ríkissjóðs. Þannig að ég get að sjálfsögðu tekið undir að það þurfi að vanda vinnubrögðin hér og gefa fólki tíma til þess að fara yfir hlutina.
Ég er reyndar í þeirri stöðu að þekkja þetta mál ágætlega, hafandi starfað innan verkalýðshreyfingarinnar í rúm 20 ár. Ég þekki forsöguna. Ég var þátttakandi og skrifaði undir þann kjarasamning sem varð í raun og veru þess valdandi að þetta mál fór af stað. Þetta byrjaði við kjarasamninginn 2015 þegar við sömdum um forsenduákvæði í þeim samningi. Það kemur síðan í ljós 2016 að forsendur höfðu brugðist og til að auka ekki á þenslu var farið í að skoða aðra möguleika en að hækka bara laun. Þá kom upp að það væri jú auðvitað bara gráupplagt að nýta þetta tækifæri til að jafna þessi lífeyrisréttindi sem höfðu alltaf verið ójöfn. Lífeyrisréttur opinberra starfsmanna var alltaf talsvert betri en lífeyrisréttur starfsmanna á almennum vinnumarkaði þannig að það er búið að vera baráttumál verkalýðshreyfingarinnar í áratugi að ná því fram að lífeyrisréttur yrði jafnaður á milli markaða.
Það voru auðvitað ákveðin sjónarmið beggja vegna borðsins þegar þetta var gert á sínum tíma. Það var líka verið að skoða að það þyrfti að jafna laun á milli markaða og um leið átti þá að taka af ríkisábyrgðina á lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna sem gerir það að verkum auðvitað að þeirra sjóðir eru þá bara eins og sjóðirnir á almennum markaði, verða að sjá um sig sjálfir. Það þótti eðlilegt og rétt að þannig væri málum háttað, við sætum við sama borð hvað varðar ríkisábyrgð. Það hefur ekki verið nein ríkisábyrgð á almennum sjóðum sem töpuðu verulega af sínum réttindum í hruninu. Á sama tíma voru opinberir sjóðir með ríkisábyrgð þannig að það er eitt og annað í þessu.
Niðurstaðan varð þessi: Hækkum þetta upp í 15,5% og það var gert á þremur árum, frá 2016–2018 var þetta jafnað í gegnum framlag frá vinnuveitanda þannig að á þessu þriggja ára tímabili komu þessi 3,5% inn í lífeyrissjóðinn. Þetta gerir það að verkum, eins og hér hefur verið rakið, að það er verið að auka réttindi verulega í lífeyrissjóðunum og mun hafa talsverðar breytingar í för með sér. Hingað til hefur fólk sem hefur unnið í 40 ár ekki haft út úr lífeyrissjóði nema sirka 56% af meðalævitekjum en við þessar breytingar getur viðkomandi átt von á því að fá 72% af ævitekjum. Það er verulegur bati sem í þessu felst, að fá þessa hækkuðu innborgun. Það tryggir rétt fólks þegar það fer á eftirlaun. Það er auðvitað mikill bati sem felst í þessu. Hér hefur líka verið rakið að ávinnslan verður þá 1,8% á ári í staðinn fyrir 1,4% þannig að þú getur svona sirka séð hvað þú ert að gera á hverju ári eða hverjum áratug sem þú ert að borga í lífeyrissjóð hvaða réttindi þú ert að ávinna þér.
Síðan er auðvitað það sem hefur verið bitbein, og maður heyrir það hjá fólki, það er þessi tilgreinda séreign sem margir eru ósáttir við en hún á sér sína sögu. Hún verður til vegna þess að ákveðinn hluti verkalýðshreyfingarinnar vildi ekki auka réttindin í samtryggingunni, vildi bara fá þetta hreint og klárt inn í séreignina. En það var aldrei tilgangurinn heldur að þetta ætti að vera bundið þar til þú færir á eftirlaun. Það var tilgangurinn. Niðurstaðan var málamiðlunin, þessi tilgreinda séreign sem væri þá eins og önnur séreign, hún væri einkaeign og væri erfanleg. Það er auðvitað eitthvað sem margir töldu að það væri jákvætt. Við heyrum það sýknt og heilagt: Maður er alltaf að borga í þennan lífeyrissjóð, svo deyr maður bara og þá fær fjölskyldan ekki neitt. Þannig hafa margir talað en við erum með samtrygginguna inni í þessum sjóði þannig að þeir sem veikjast eða slasast á leiðinni hafa þá einhverja baktryggingu sem felst í þessari samtryggingu sem er búin til inni í samtryggingu lífeyrissjóðanna. Þannig að þetta vegur hvert upp á móti öðru. En við það að setja hlutina í tilgreinda séreign þá ertu enn þá bara með þessa gömlu ávinnslu sem er 56% eins og var, þú ert bara í sömu stöðu en ert þá kominn með séreign upp á 3,5% sem er meðhöndluð með öðrum hætti. Þínir afkomendur geta fengið það til sín ef þú deyrð áður en þú ert búinn að nýta þetta. Það eru plúsar og mínusar við þetta.
Síðan er auðvitað bara þetta val sem þarf að eiga sér stað þegar þú byrjar að borga í lífeyrissjóð, að þér sé kynnt hvað þetta þýðir fyrir þig. Hvað græðirðu á því að setja þetta undir tilgreinda séreign, og ég er svona að reyna að rekja það, en hvað græðirðu á því að setja þetta í samtrygginguna? Hvaða viðbótartryggingu býrðu til með því að setja þetta allt í samtryggingu? Við vorum alveg meðvituð um það strax að ungt fólk sem er að hefja vinnu ætti í raun að setja allt í samtryggingu til að tryggja sjálft sig en ekki síður eru það líka tryggingar fyrir börn, það eru tryggingar fyrir maka sem skipta máli og það miðast auðvitað við hvað það er sem er í samtryggingunni.
Fólk þarf að meta þetta, þetta er bara ákveðið val sem þarf að fara fram og mér finnst það eðlilegt og ég hræðist ekkert að fólk velji það sem það telur að það sé því fyrir bestu. Þannig að ég er ekki óttasleginn hvað þetta varðar. Ég held að flestir muni velja skynsamlega. Við sjáum að það er misjafnt örorkuálag á lífeyrissjóðunum og í sjóðum eins og Gildi, sem eru með mikið af verkafólki, er meira um örorku af því að vinnan sem fólk er að stunda er erfiðari og skapar kannski meiri líkamleg veikindi fyrr á ævinni en hjá fólki sem situr inni á skrifstofu. Það er ekki óeðlilegt að slíkur hópur velji þá að vera í samtryggingunni til að halda tryggingunni betri og manni sýnist nú að það hafi gerst í Gildi að flestir séu í samtryggingunni. Þeir hafa ekki farið í þessa tilgreindu séreign.
Þetta er eins og þetta snýr að mér, hafandi tekið þátt í þessu á sínum tíma. Ég sjálfur hafði aldrei gert mér í hugarlund að það þyrfti að grípa til einhverra slíkra hluta að búa til einhverja tilgreinda séreign, af því að ég horfði á það eins og margir aðrir: Við erum að bæta réttindi og þess vegna erum við að horfa á samtryggingu, ekki einhverja tilgreinda séreign, en vegna andstöðu ákveðinna aðila innan verkalýðshreyfingarinnar var þetta málamiðlunin. Við náðum málamiðlun, að búa til þessa bundnu séreign sem fyrst var kölluð en var síðan breytt í þessa tilgreindu séreign. Það varð niðurstaðan.
Núna eru fleiri hlutir komnir inn sem ég hefði alveg getað þolað að væru ekki þarna inni eins og þessi skattfrjálsa heimild einstaklinga til að nýta tilgreinda séreign til kaupa á fyrsta íbúðarhúsnæði sem er þá til viðbótar við ráðstöfun á viðbótargjaldi eða viðbótarlífeyrissparnaði. Það getur þá aldrei farið upp fyrir 500.000 kr. á ári þannig að ef þú ert með einhvern viðbótarlífeyrissparnað þá nýtirðu hann fyrst áður en þú nýtir tilgreindu séreignina. Ef ég skoða þetta bara svona gróft þá ertu, ef þú ert með 500.000 kr. í laun, að borga 6% í viðbótarlífeyrissparnað eða 30.000 kr. á mánuði, það gerir 360.000 kr. yfir árið, þannig að þú gætir í mesta lagi ráðstafað 140.000 kr. af tilgreindu séreigninni þinni yfir árið. Ef þú ert með 600.000 kr. geturðu bara ráðstafað 68.000 kr. af tilgreindu séreigninni þinni, þú ert þá að ávinna þér upp á 250.000 kr. þannig að þú getur ekki ráðstafað nema hluta af henni. Ef þú ert með 700.000 kr. á mánuði geturðu ekki ráðstafað neinu, af því að þá er séreignarsparnaðurinn kominn upp fyrir þetta. Þetta er líka bara val, hvort viltu fjárfesta í fasteign, sem er svo bara eignin þín sem þú getur svo selt þegar þú ferð á eftirlaun eða viltu hafa þetta í samtryggingu eða bundinni séreign þegar þú lætur af störfum? Þarna eru ákvæði sem fólk getur bara haft sínar eigin skoðanir á og maður þarf ekki alltaf að velja fyrir fólk.
Það sem mér finnst líka skipta máli í þessu er að jafna stöðu allra gagnvart almannatryggingum. Það skiptir verulegu máli að þeir sem hafa verið að borga bara í séreignarsjóði eða viðbótarlífeyrissparnað hafa getað undanþegið sig frá samtryggingunni og hafa þar af leiðandi oft getað fengið út úr almannatryggingum eins og fólk sem hefur engar tekjur haft. Það er óásættanlegt og þessi breyting skiptir verulegu máli. Það gengur ekki að tekjuháir hópar sem ekki hafa verið með skyldu til að greiða í lífeyrissjóð geti fengið út úr almannatryggingum eins og fólk sem hefur ekki neinar tekjur, þannig að þetta er réttarbót sem skiptir miklu máli.
Ég ætla ekki að segja neitt mikið meira um þetta. Ég er bara sáttur við að eftir sjö ár frá því að fyrsti samningurinn var gerður, 2015, sé þetta að verða að lögum, þessi lágmarkstrygging í framlagi í lífeyrissjóð. Það skiptir máli. Ég er líka bara ánægður með þær breytingar sem hafa verið gerðar á frumvarpinu. Ég var búinn að heyra um þetta frumvarp í talsverðan tíma, löngu áður en ég varð þingmaður. Það var talað um áhyggjur af því að það ætti að fara færa lífeyrisaldurinn úr 16 árum upp í 18. Það var tekið út. Bara við þá breytingu hefði þessi prósenta rýrnað um 3,6%, miðað við 1,8% á ári, þannig að það var af hinu góða að þetta yrði tekið út. Þetta hefði í raun og veru í mínum huga verið bara þjófnaður af ungu fólki ef þetta hefði orðið að lögum. En sem betur fer var þetta endurskoðað. Hvernig átti að reikna síðan þessa breytingu á vísitölureikningi þegar átti að fara að reikna þetta árlega í staðinn fyrir mánaðarlega eins og verið er að gera af lánunum okkar? Þá er eðlilegt að útreikningur á vísitölu sé bara með sama hætti alls staðar. Þetta var kannski það sem fólk gerði kannski hvað mestar athugasemdir við en þetta er farið út. Þá standa bara eftir þessi atriði sem upp eru talin, það er verið að tryggja að þeir sem hafa verið í séreignarsparnaði njóti ekki einhverra sérstakra gæða lengur. Það verður að tryggja framlagið upp á 15,5% og síðan verða sjóðfélagar að taka ákvörðun um tilgreindu séreignina.