152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[01:19]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég held að ég þurfi aðeins meira en tvær mínútur til að tjá mig um það sem hér hefur verið sagt. Ég verð nú að segja það, hæstv. forseti, að mér þykir það skrýtin söguskýring sem hér er að koma fram, þegar verið er að halda því fram að þeir sem stóðu í stafni fyrir verkalýðshreyfinguna á þessum tíma hafi svikið fólk þegar farið var í það að greiða atkvæði um kjarasamninga. Hér er talað um verkalýðsforkólfa — ég er bara einn af þeim. Ég var nú bara í því að gera þennan samning og ég var líka einn af þeim sem var í því að kynna þennan samning. Ég þekki bara ekki þessi svik og blekkingar sem hér er verið að tala um, að launþegar hafi verið plataðir til að samþykkja einhvern samning sem átti sér ekki stoð í raunveruleikanum. Það er bara eitthvað sem ég vísa til föðurhúsanna. Ég þekkti ekki á þessum tíma hugtakið „tilgreind séreign“ en ég þekkti það sem kallað var „bundin séreign“ og um það var samið og þannig var samningurinn kynntur. Þetta var bundin séreign sem fólk átti ekki að hafa aðgang að fyrr en það færi á eftirlaun. Þannig var samningurinn. Síðan hafa komið upp atriði um með hvaða hætti ætti að ráðstafa þessari séreign og til hverra og hverjir gætu séð um hana. Það komu í ljós ákveðin vandkvæði við það að verið væri að senda séreignina út um hvippinn og hvappinn án þess að samtryggingarkerfið okkar hefði yfirlit yfir það hvernig hlutunum væri ráðstafað. Ef vinnuveitandi er að senda yfirlit yfir inngreiðslur í lífeyrissjóð þá þarf hann með einhverjum hætti að átta sig á því hvort ég er að fá 12% eða 15,5%. Veitir þetta 15,5% tryggingavernd eða 12%? Hann veit það með því að þú sendir inn og lætur svo vita hvort þú ert í tilgreindri séreign eða ekki og ef þú ert kominn í tilgreinda séreign þá talar þú við lífeyrissjóðinn og segir: Ég vil fá að senda hana annað. Lífeyrissjóðurinn hefur innheimtuskyldu sem almennir frjálsir sjóðir hafa ekki í eins ríkum mæli og samtryggingarsjóðirnir. Til þess að lífeyrissjóðirnir geti haldið utan um tryggingaverndina sjálfa, sem eru annaðhvort 12% eða 15,5%, þá fá þeir það til sín og setja síðan tilgreindu séreignina inn í samtrygginguna. Ef tilgreinda séreignin á síðan að fara annað þá er það að sjálfsögðu frjálst, en þá gerist það bara með þessum tilflutningi og í samráði við lífeyrissjóðinn þannig að það er full vitneskja um það að tryggingaverndin sé þá 12% en ekki 15,5%. Þannig er þetta bara.

Það sem verið er að segja hér núna, að verið sé að plata fólk af því að nú eigi þetta að vera heimild lífeyrissjóðanna, þá er það þannig að þessi samningur var gerður á borði ASÍ og SA og átti aldrei að snúa neitt að opinberu sjóðunum. Síðan kemur það bara upp núna þegar verið er að lögfesta þetta að það er ekki hægt að búa til lög sem ná utan um suma. Það er því verið að búa til lög utan um alla sjóði og við heyrum það bara á opinberu sjóðunum að þeir hafa engan sérstakan áhuga á þessu. Þá er þessu snúið þannig að þetta verður heimild þeirra til að gera þetta ef þeir kjósa svo og þá eru það auðvitað félagsmenn sjóðanna sem ákveða hvort þeir kjósa það að sjóðirnir nýti sér að setja þetta þannig upp að það verði til tilgreind séreign í sjóðunum.

Almennu sjóðirnir eru allir komnir með tilgreindu séreignina. Það er ekkert verið að snúa við með það, hún er bara til staðar. Það er ekkert verið að plata einn eða neinn, fólk bara velur það. Lífeyrissjóðurinn ákveður ekki og segir: Ég ætla að hætta með tilgreindu séreignina. Hún er bara hluti af kjarasamningi sem var gerður í þágu þeirra sem í hann borga og þeir ákveða þetta bara. Svona var þetta gert og það verður ekki aftur snúið nema félagsmenn ákveði það sjálfir.

Ég átta mig því ekki á því þegar verið er að setja svona mál fram. Ég skil þetta bara ekki af því að ég þekki söguna alveg frá byrjun. Og þegar verið er að ásaka fólk hér um svik þá stend ég upp og ver mig. Ég er búinn að vera í þessari verkalýðshreyfingu frá 1996 þannig að ég veit alveg hvað hefur verið að gerast þarna, ég þekki þetta vel. Þessi samningur var eingöngu til þess ætlaður að jafna lífeyrisréttindi sjóðfélaga með opinbera kerfið. Og að væna fólk um svik og svínarí er náttúrlega forkastanlegt.