hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegi forseti. Þetta var kraftmikil og öflug ræða sem 3. þm. Suðurk. flutti hér áðan en mikið af rangfærslum sem kemur á óvart þegar fólk er að tjá sig um þetta mál. Ég sýni því skilning þegar hv. þingmaður segir að lífeyriskerfið sé flókið og það sé erfitt að skilja það. Það er hægt að taka undir þau orð. Við viljum öll sem höfum komið nálægt þessu kerfi gera það einfaldara af öllum mætti. Hér er talað mikið um óeiningu innan ASÍ. Ég vil bara fá að minna á það að umsagnir sem bárust frá aðildarfélögum utan ASÍ voru ekki margar. Það barst umsögn frá Verkalýðsfélagi Akraness og frá sjómönnum og VR. Það eru 130.000 félagar innan ASÍ, ef ég fer rétt með, og það er mitt mat að þeir aðilar sem sendu umsagnir eru lítið brot af þeim fjölda félagsmanna ASÍ, sem ASÍ talar fyrir. Ég hugsa að við getum sagt að 90%, jafnvel 95% þeirra sem greiddu atkvæði innan ASÍ hafi ekki gert athugasemdir og ég held að það hafi farið lítið fyrir óeiningu, maður hefur alla vega ekki heyrt af því, innan ASÍ við gerð umsagna eða athugasemda við þetta frumvarp vegna þess að ASÍ á lífeyrisnefnd og það var lífeyrisnefndin sem tók þetta fyrir. Hún gefur síðan ASÍ grænt ljós á það hvernig á að fara með þetta mál.
Það var talað um aukið flækjustig. Vissulega er það aukið flækjustig þegar er búin til ný séreign en ég ætla bara að minna á að þetta er þegar komið til framkvæmda. Það er búið að stofna tilgreinda séreign hjá öllum lífeyrissjóðum á samningsviði Samtaka atvinnulífsins og ASÍ. Það er búið að stofna þetta þannig að það er ekkert verið að auka neitt flækjustig með því að samþykkja þetta hér á þinginu. Það er bara verið að festa í lög gjörning sem er þegar kominn af stað og í því felst ákveðið öryggi fyrir lífeyrisþega í þessu landi, fyrir sjóðfélaga, fyrir allan almenning. Lögin eru ekki að búa til neitt nýtt. Þau eru miklu fremur til þess að stöðva flækjur.
Ég vil líka minna á það að lífeyriskerfið okkar, eins og ég sagði í ræðu minni hér fyrr í kvöld, er talið eitt það besta í heimi, að það er afrakstur vinnu ekki síst verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda í þessu landi. Lífeyriskerfið eins og ég kom inn á áðan er hluti af velferð okkar Íslendinga. Ég hef sagt það áður opinberlega að okkur verður ekki allt að gæfu í þessu landi en þetta kerfi hefur verið mikil gæfa fyrir okkur Íslendinga og við skulum þakka þeim sem stóð í stafni hér fyrir rúmum 50 árum og komu kerfinu á því að við erum öfunduð af því af þjóðum í kringum okkur. Þetta er það kerfi sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur mælt með, uppsetningunni á því. Ég get ekki tekið undir það að hér hafi verið samráðsleysi því þetta mál á sér næstum því yfir tíu ára sögu og allir þeir sem koma að lífeyrismálum á Íslandi þekkja það mjög vel. Þannig að ég vil árétta það að fólk fari rétt með og sé ekki að draga niður kerfi sem er gott í íslensku samfélagi.