152. löggjafarþing — 90. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[01:30]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að játa það að ég þekki lífeyriskerfið ekkert brjálæðislega vel. Það er náttúrlega ein af ástæðunum fyrir því að ég er mjög ósátt við þennan stutta tíma sem hefur verið gefinn. Við fengum mjög lítinn tíma til að fara yfir þessi mál og ég hef í rauninni ekki miklar forsendur til að taka efnislega afstöðu til málsins og ég tók það mjög skýrt fram að ég væri ekki að taka efnislega afstöðu þannig séð til málsins. En ég bara get ekkert litið fram hjá því, og tel það ekki vera neina söguskýringu eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson sagði, sem stendur í samningnum, ég tel mig hafa ágætis lesskilning og það stendur: verði einstaklingum heimilt að ráðstafa. Einstaklingar hafa ekki lengur þessa heimild í rauninni til að ráðstafa (Gripið fram í.) — ja, hún er orðin frekar loðin og teygð. Það verður bara að segjast eins og er.

Ég veit það ekki, ég heyrði gríðarlegar efasemdir frá mörgum verkalýðsleiðtogum. Ég geri mér grein fyrir því að það er klofningur þar inni. Hann er þar greinilega. Það eru einhverjir verkalýðsleiðtogar sem eru sammála þessu eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson sem starfaði lengi innan verkalýðshreyfingarinnar og kom að þessum samningum, (GE: Skrifaði undir hann.) já, en aðrir sem skrifuðu undir hann eru það ekki. Það er heldur ekkert hægt að tala um einhvern smá hluta af ASÍ þegar við erum að tala um að VR og ja, ég veit ekki, Efling, mér finnst það ekki ólíklegt, séu ekki sátt við þennan samning.

Hitt er svo annað að það skiluðu ekki allir inn umsögn, enda var tíminn sem var gefinn hvítasunnuhelgin. Það er bara mjög, mjög stuttur tími. En það komu engu að síður 17 umsagnir og flestar þeirra voru á einhvern hátt neikvæðar, bara flestar, og það er það sem ég er að horfa á. Ég er ekkert að fara efnislega í þetta hérna og ég er ekki að gagnrýna lífeyrissjóðakerfið sem heild eða neitt þess háttar. Ég er bara að tala um að 2016 var gerður samningur og launþegarnir voru miðjan í þessum samningi en lífeyrissjóðirnir eru orðnir það í dag. Það er ekki sami hluturinn. Það getur vel verið að þetta sé besta fyrirkomulag sem hægt er að finna. Ég er bara tala um það sem stendur í þessum samningi og ég get ekki séð að því sé framfylgt. Það er það eina sem ég er að segja. Ég nefndi ekki einu orði flækjustig, ekki neitt þess háttar. Ég fór bara yfir það sem ég hef á þessum skamma tíma getað lesið út úr þessu. Það getur vel verið að þetta sé það besta sem hægt er að gera, ég hef bara ekki forsendur til að meta það. En þetta:

„Við endurskoðun kjarasamnings ASÍ og SA um lífeyrismál, sem ljúka skal fyrir lok maí 2016, verði einstaklingum heimilt að ráðstafa, að hluta eða fullu, 3,5% auknu framlagi launagreiðanda í bundinn séreignarsparnað í stað sameignar til að auðvelda launafólki starfslok og auka sveigjanleika. …“

Ég get ekki séð að lífeyrissjóðirnir eigi að vera miðjan í þessu samkomulagi þó svo að, eins og ég segi, kannski sé þetta það besta, ég er ekki einu sinni að taka afstöðu til þess.