152. löggjafarþing — 91. fundur, 15. júní 2022.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
332. mál
Virðulegur forseti. Það hryggir mig ef það er í raun og veru þannig að hér séu allir hv. þingmenn að greiða atkvæði samkvæmt sinni eigin sannfæringu vegna þess að það er ekki gott útlit á þessari atkvæðagreiðslutöflu gagnvart mikilvægum verndarsvæðum, gagnvart náttúrunni okkar. Mögulega er þetta einhver samningur sem fólk er til í að gera. En ég bið hv. þingmenn um að hugsa um hvers virði þeirra sannfæring er. Er hún virkilega þess virði að fórna henni fyrir þetta stjórnarsamstarf? Ég held ekki.