áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Ég segi já við þessari tillögu vegna þess að hérna fáum við í hendurnar faglegt mat sem við þurfum að skoða. Faglega matið snýr að því að þarna séu atriði á þessum svæðum sem beri að vernda. Þegar ég hugsa svo um að náttúran skuli njóta vafans þá er það mjög auðveld ákvörðun. Það er hins vegar erfiðari ákvörðun þegar faglega niðurstaðan segir að hérna megi virkja. Hvort það á síðan að virkja er önnur spurning, það er miklu erfiðara að svara þeirri spurningu. Það er mjög auðvelt að svara þessari spurningu. Niðurstaðan úr faglegu mati hefur verið að hérna séu mikilvæg svæði sem þarf að vernda. Ef fólk ætlar í alvörunni láta náttúruna njóta vafans þá er það ekki einu sinni valmöguleiki að segja eitthvað annað en já við þessari tillögu.
(Forseti (BÁ): Hv. þingmaður segir?)
Ég byrjaði á því.