152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

áhafnir skipa.

185. mál
[12:44]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég er kannski ekki að segja þingheimi neinar fréttir af því að okkur hefur öllum borist neyðarkall frá fagfélögum þeirra sem starfa á sjó um það að í frumvarpi til laga um áhafnir skipa hafi ekki verið tekið tillit til eða komið nægjanlega til móts við sjónarmið þeirra samtaka. Því var einfaldlega ekki veitt áheyrn, fólkinu sem er að gæta hagsmuna þeirra sem þessi lög fjalla um. Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar ákvað að afgreiða málið óbreytt daginn eftir sjómannadag — talandi um kaldar kveðjur til sjómanna. Okkur í minni hlutanum, sem stöndum að þessari frávísunartillögu, finnst þetta ótækt og leggjum þess vegna til að málið verði sent upp í ráðuneyti til að vera unnið almennilega, þannig að hægt sé að klára þetta í sátt við fólkið sem þessi lög fjalla um. Er það ekki algjört lágmark?