152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

583. mál
[12:51]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við ræðum hér stækkun virkjana í rekstri, um raforkulög. Við ræðum hér aflaukningu þriggja virkjana í Þjórsá. Aflaukning virkjana í Þjórsá er mikilvæg til að takast á við breytilega eftirspurn raforku. Það er verið að auka sveigjanleika í raforkukerfinu. Hér greiðum við atkvæði sem stuðlar að betri nýtingu raforkukerfis þjóðarinnar, sem í dag er verulega vannýtt. Í vinnu orkustefnunefndar á síðasta kjörtímabili kom fram að íslenska raforkukerfið væri verulega vannýtt. Nýtingin á kerfinu var einungis um 75%. Þetta frumvarp um raforkulög, þ.e. stækkun virkjana í rekstri, er áfangi í þá átt að nýta raforkukerfi þjóðarinnar betur; að okkar verðmæta græna orka sé nýtt með sem allra bestum hætti, að samspil öflugs flutningskerfis raforku, virkjun vatnsafls, jarðvarma og vindorku stuðli að því að við náum markmiðum okkar í tengslum við loftslagsmálin um kolefnishlutlaust samfélag fyrir árið 2040. Ég fagna þessu frumvarpi. Þetta er gott mál og hér er skynsamlega að verki staðið.