152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

sveitarstjórnarlög.

571. mál
[12:58]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hér er verið að gera einfalda lagfæringu á sveitarstjórnarlögum hvað varðar íbúakosningar. Í staðinn fyrir að heimila sveitarstjórnum að ákveða hærra hlutfall, hærri þátttökuþröskuld, bara hærri þátttökuþröskuld, þá sé verið að leyfa sveitarstjórnum að hafa annað hlutfall, líka lægri þröskuld. Þetta felur í sér meira svigrúm fyrir sveitarstjórnir til að ákveða fyrirkomulag íbúalýðræðis innan síns sveitarfélags. Við erum að færa völd frá okkur til sveitarstjórna. Þetta er mjög einfalt mál og því hvet ég hv. þingmenn að sjálfsögðu til að kjósa með því.