tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég fagna því mjög að þetta mál sé komið fram og mér sýnist á öllu að gerðar hafi verið á því jákvæðar og góðar breytingar í nefnd sem ég styð heils hugar. Þá var þeim skilyrðum aðeins breytt sem þarf að uppfylla til að falla þarna undir. Ég er ekki í neinum vafa um það, þótt ég sé almennt þeirrar skoðunar að við þurfum að skoða vel ef við erum að veita einhvers konar ívilnanir til ákveðinna atvinnugreina, að sérstaða þessa máls sé með þeim hætti að við eigum að styðja það. Ég held að áhrif þessa máls verði gríðarlega jákvæð á hinar skapandi greinar hér á Íslandi, íslenska kvikmyndagerð og íslenska menningu. Við erum að samþætta íslenska menningu, íslenskt landslag og íslenska náttúru. Ég styð þetta heils hugar og vil líka vekja athygli á ágætri og jákvæðri hliðarafurð af þessu máli, sem er að þetta styrkir líka á sinn hátt stoðir íslenskra fjölmiðla.