stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir þá vinnu sem hún hefur lagt í þetta mikilvæga frumvarp og þær breytingar sem hún leggur til á því. Það hefur sannast á örfáum mánuðum og árum hve mikilvægur stuðningur fyrri ríkisstjórnar á síðasta kjörtímabili hefur verið með þessu hvatakerfi í nýsköpunarumhverfinu. Fjölmörg dæmi hafa sýnt á síðustu mánuðum og árum hversu mikið þetta hefur borgað sig fyrir íslenskt efnahagslíf.
Ekki þarf að leita langt yfir skammt til að finna slík dæmi og langar mig að nefna þrjú. Leikjafyrirtækið 1939 Games ákvað að vera á Íslandi í staðinn fyrir að færa sig erlendis eftir ákvarðanir stjórnvalda og hefur nú þegar margfaldað veltu sína og tvöfaldað starfsmannafjöldann.
Annað dæmi er Nox Medical sem hefur hjálpað 10 milljónum manna um allan heim að njóta bættrar svefnheilsu. Störfum hefur fjölgað í miðjum heimsfaraldri um tæp 40% og fjárfesting í rannsóknum og þróun hefur tvöfaldast. Þessi auknu umsvif hafa skilað ríkissjóði skatttekjum sem nema margfaldri hækkun á endurgreiðslu ríkisins vegna fjárfestinga í rannsóknum og þróun.
Þriðja dæmið er Running Tide, framúrskarandi kolefnisförgunarverkefni á heimsvísu sem hefur valið Ísland sem áfangastað síns verkefnis, m.a. vegna þeirra breytinga sem við höfum gert á nýsköpunarumhverfinu. (Forseti hringir.)
Þetta eru þrjú dæmi sem segja alla söguna.