152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

569. mál
[13:12]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Viðreisn styður þetta eindregið og við fögnum þeirri breytingu sem er að eiga sér stað. Við lögðum ítrekað fram á síðasta þingi þessa tillögu um að þetta yrði viðvarandi stuðningur. Þá felldi stjórnarmeirihlutinn þetta, sama stjórn, en núna er þetta blessunarlega komið inn og vil ég fagna því sérstaklega. Ég vil líka undirstrika að það er ánægjulegt að sjá hvernig nýsköpunarumhverfið hefur verið að þróast á gríðarlega jákvæðan og sterkan hátt, en ég vil líka minna á eina helstu ósk nýsköpunarfyrirtækja og forystufólks í nýsköpunarfyrirtækjum; 70% þeirra sem stýra nýsköpunarfyrirtækjunum benda á að helsta hindrunin sé íslenska krónan. Við verðum einhvern tímann að taka umræðu um þá hindrun og hvernig við komum henni úr vegi til að nýsköpunarfyrirtækin geti blómstrað enn frekar.