virðisaukaskattur.
Virðulegur forseti. Inn í þetta dæmi vantar líka tengiltvinnbílana. Það er alveg með ólíkindum að það skuli vera búið að taka þá út vegna þess að flestir sem eru á tengiltvinnbílum geta ekið um hér innan bæjar allt að 80–90% án þess að þurfa að nota jarðefnaeldsneyti. En það er annað í þessu máli sem gleymist alltaf. Það er að bílastyrkir til öryrkja hafa ekki hækkað árum saman. Það er alveg lágmark þegar verið er að ívilna að gefa fólki tækifæri til að kaupa sér rafmagnsbíla, að styrkir til þeirra sem þurfa virkilega á bifreiðum að halda, fatlað fólk sem kemst ekki leiðar sinnar án þess að hafa bifreið til umráða, séu hækkaðir þannig að þeir hafi þá alla vega möguleika á að kaupa sér þessar bifreiðar.