152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

virðisaukaskattur.

679. mál
[13:25]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti spyr: Hér er smálagaflækja. Þegar þetta mál var samþykkt upprunalega var gert ráð fyrir því að létt bifhjól í flokki II sem eru skráð í ökutækjaskrá myndu fá þennan afslátt sem öll önnur rafknúin farartæki fá. En svo var gerð breyting á umferðarlögum og þar var felld burt sú skylda að létt bifhjól í flokki II væru skráð í ökutækjaskrá og af því að heimild var fyrir því ef þau voru skráð í ökutækjaskrá að fá afsláttinn þá fengu þau hann allt í einu ekki lengur. Nú er verið að bæta því við og laga þennan galla sem var í rauninni afleiðing af því að umferðarlögunum var breytt þannig að nú mega létt bifhjól í flokki II aftur fá afslátt. Takk kærlega.