virðisaukaskattur.
Virðulegi forseti. Mér finnst eðlilegt að styðja við niðurfellingu á virðisaukaskatti til björgunarsveita og studdi það. En mér finnst hins vegar ekki rétt að styðja við niðurfellingu á virðisaukaskatti á 5.000 hreinorkubílum á þessum tímapunkti. Ég hef ekki sannfæringu fyrir því að þetta sé rétt á þessum tímapunkti af mörgum ástæðum. Við erum í aðra röndina að tala um þenslu en í hina röndina að auka þenslu. Hér hefur verið nefnt að við ætlum að forgangsraða fjármunum og ég vil bara taka undir það. Mér finnst þetta ekki rétt forgangsröðun á þessum tímapunkti. Ég vil líka benda á umsögn Ungra umhverfissinna sem töldu að ekki væri verið að forgangsraða fjármunum rétt til þess að draga úr mengun.