152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[13:29]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða afar brýnt mál sem er m.a. ætlað að ljúka samræmingu lífeyrisréttinda á öllum vinnumarkaðnum og stuðla að sjálfbærni lífeyriskerfisins þannig að hver kynslóð standi undir eigin lífeyrisréttindum. Ég hef starfað innan lífeyrissjóðakerfisins, setið í stjórnum tveggja sjóða sem og starfað á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða. Mig langar, kæru þingmenn, að fá að endurtaka orð mín frá umræðunni í gærkvöldi því að einhverra hluta vegna voru þið flest ekki þar. Mig langar að fá að endurtaka það að kerfið okkar er gott. Hér á Íslandi verður okkur ekki alltaf allt að gæfu. En það að okkur hafi tekist það fyrir 50 árum (Forseti hringir.) að koma á stofn lífeyrissjóðakerfi í þeirri mynd sem það nú er er virkileg gæfa þjóðarinnar (Forseti hringir.) sem við skulum öll sameinast um að standa vörð um.