hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.
Virðulegur forseti. Þetta mál kom mjög seint inn til þingsins og hefði þurft töluvert umfangsmeiri umfjöllun en það fékk í ljósi tímaskorts. Ég gerði ítarlega grein fyrir þeim athugasemdum sem ég hef við frumvarpið í ræðu minni seint í gærkvöldi og mun svo sem ekki geta endurtekið það allt hér. Það sem bar kannski hæst var að ég geri athugasemd við þá pólitík sem birtist í því að gera fólki kleift að ráðstafa ævisparnaði sínum í kaup á fyrstu fasteign. Það er stöðugt verið að dæla í eftirspurnarhliðina og alls ekki verið að gera nóg á framboðshliðinni. Við eigum ekki sífellt að vera að setja fólk í þá stöðu að þurfa að taka úr ævisparnaði sínum til að koma þaki yfir höfuðið. Við höfum betri verkfæri til þess að uppfylla þau grundvallarréttindi fólks að eiga þak yfir höfuðið. Það er alltaf verið að leyfa okkur að taka lán hjá okkur sjálfum og það er ekki endilega þakkarvert.