152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[13:33]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Öll mannanna verk eru umdeild og þetta er það svo sannarlega. Ég þekki þetta mál alveg frá 2016 þegar ég var einn af þeim sem undirrituðu kjarasamning sem fjallaði um þetta. Markmiðið með þessum kjarasamningi var fyrst og fremst það að jafna lífeyrisréttindi á milli markaða, fara úr 12% iðgjaldi í 15,5%, þannig að þeir sem væru að vinna á almennum markaði nytu sams konar lífeyrisréttinda og þeir sem væru í opinbera geiranum. Til að sætta sjónarmið á þeim tíma var búin til þessi svokallaða tilgreinda séreign, sem var ekkert markmiðið í sjálfu sér en vegna óeiningar í verkalýðshreyfingunni varð að búa til slíkt úrræði sem hefur komið við kaunin á opinberu aðilunum, og það er skiljanlegt. En þeir hafa bara þessa heimild til að ákveða hvort þeir hafi þessa tilgreindu séreign eða ekki. (Forseti hringir.) Ég tók þátt í þessu á sínum tíma og ber ábyrgð á þessu. Ég segi því já.