152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[13:34]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Samfylkingunni styðjum eindregið þá hækkun lágmarksiðgjalds og lágmarkstryggingaverndar sem lögð er til í þessu frumvarpi. Við styðjum líka hið breytta samspil milli greiðslna almannatrygginga og lífeyrisgreiðslna úr lífeyrissjóðum. Við gjöldum hins vegar varhug við hvers kyns lagabreytingum sem eru til þess fallnar að veikja samtryggingarmátt lífeyrissjóðakerfisins og við teljum að ýmislegt í þessu frumvarpi hafi ekki fengið fullnægjandi umræðu og skoðun. Að öðru leyti er gerð grein fyrir okkar sjónarmiðum í nefndaráliti sem ég mælti hér fyrir í gær og við hv. þingmaður Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, stöndum að.