152. löggjafarþing — 91. fundur,  15. júní 2022.

hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs.

690. mál
[13:40]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Eins og fram kom áðan þá styðjum við í Samfylkingunni í prinsippinu og í grunninn hið breytta samspil á milli lífeyrisgreiðslna og greiðslna frá Tryggingastofnun sem verið er að leggja til í þessu frumvarpi. Við teljum hins vegar að skilin milli gamla skerðingarfyrirkomulagsins og þess nýja og lagaleg álitamál sem þessum skilum tengjast hefðu þurft að fá ítarlegri skoðun í nefndinni og munum því sitja hjá.