jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Herra forseti. Þetta er enn eitt frumvarpið í langri röð frumvarpa frá þessari ríkisstjórn sem virðist fyrst og fremst snúast um yfirbragð, yfirlýst markmið, fyrirsögnina, ýmsar jákvæðar, og jafnvel bara mjög jákvæðar, lýsingar í frumvarpinu sjálfu án þess að tekið sé tillit til raunverulegs innihalds, þ.e. þeirra breytinga sem frumvarpið hefur í för með sér og áhrifa þeirra.
Margt af því sem ég hef áhyggjur af, flest líklega, var nefnt hér í mjög góðri ræðu hv. þm. Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Ég hafði einmitt hugsað mér að byrja á því að undirstrika það sem hv. þingmaður ræddi töluvert, að þótt framsögumaður málsins hér við 3. umr., og að því er mér heyrist að einhverju leyti umræður í nefndinni, hafi undirstrikað það að ætlunin væri ekki að ná fram ákveðnum áhrifum, með öðrum orðum að þeir sem tala fyrir frumvarpinu séu ekki sammála frumvarpinu sjálfu, séu ekki sammála orðanna hljóðan í frumvarpinu, að það eigi að túlka það öðruvísi en það sem stendur í frumvarpinu, þá hefur það því miður minna gildi en texti frumvarpsins þegar á reynir. Við höfum séð ýmis dæmi um þetta, bæði hér á landi en einnig í útlöndum. Til að mynda í Bretlandi hefur það mikið verið rætt undanfarin ár hvernig menn hafi kannski farið fram úr sér að einhverra mati við að framfylgja lögum sem þessum og lögreglu verið blandað í það ítrekað, mjög oft, ætli skiptin nemi ekki hundruðum í Bretlandi, og þurft að hlutast til um það þegar einhver hefur móðgast. Þá einmitt, eins og komið var inn á í ræðunni hér á undan, er bent á að það þurfi ekki endilega að sýna fram á ásetning vegna þess að þetta sé spurning um mat hvers og eins, hvort hann eða hún hafi móðgast yfir einhverjum yfirlýsingum eða jafnvel, eins og hér er nefnt sérstaklega í 8. gr. frumvarpsins, yfir auglýsingum.
Í 8. gr. segir, með leyfi forseta:
„Auglýsandi og sá sem hannar eða birtir auglýsingu skulu sjá til þess að auglýsingin sé ekki til minnkunar eða lítilsvirðingar þeim sem hafa ákveðna lífsskoðun eða trú […]“
Og þá er öllum þeim sem hafa þessa lífsskoðun eða trú, ákveðnar skoðanir á tilteknum málum, eftirlátið að meta það hvort þeir hafi móðgast. Fyrir vikið mætti vísa í þessi lög ef einhver auglýsandi tæki t.d. upp á því að nota 40–50 ára gamalt myndband úr Monty Python mynd til að auglýsa einhverja vöru og ætti þá á hættu að vera kærður fyrir vikið. Þetta er atriði sem má ekki líta fram hjá, að jafnvel þó að menn kysu að líta fram hjá lögunum og teldu þau kannski ekki sanngjörn þá skapar þetta ákveðna ógn. Þetta felur í sér sjálfsritskoðun þeirra sem munu vilja forðast að gagnrýna einhver viðhorf sem þeir óttast að móðgi einhvern og hugsanlega valda lagaflækjum fyrir sjálfa sig, fordæmingu. Það er því allt of margt í þessum lögum, þrátt fyrir yfirlýstan jákvæðan tilgang, sem er mjög varhugavert og veruleg hætta á að verði misnotað, hvað sem líður yfirlýsingum núna í lok umræðunnar frá flutningsmönnum málsins, um að það beri ekki að skilja lögin eins og þau eru skrifuð.
Hvað varðar mismunun almennt á grundvelli persónueinkenna þá er hún nú þegar bönnuð, meira að segja í stjórnarskrá, þannig að á því sviði er ekki miklu bætt við. Það er bannað að mismuna fólki á grundvelli persónueinkenna, eðlilega, en skoðanir — hvað sem menn kalla það, og hér eru notuð ýmis orð yfir það, trú, lífsskoðun, skoðanir um ákveðin mál — það er meira að segja talað um þekkingarfræði sem Karl Marx var nú mjög mikill áhugamaður um og komst reyndar alltaf að þeirri niðurstöðu að þekking sem hann væri sammála væri jákvæð en önnur þekking og skoðanir ekki.
Þetta frumvarp mælir fyrir um það að það megi ekki móðga, það er beinlínis sagt hér á fyrstu síðu frumvarpsins að það megi ekki móðga fólk á grundvelli skoðana þeirra. Þetta er fyrir vikið aldeilis ekki frjálslynt frumvarp og mjög varasamt, sérstaklega þegar það bætist við að ákveðnir aðilar geti misnotað það með því að ákveða að móðgast yfir gagnrýni sem ekkert tilefni var til að gera að lagamáli eða sakamáli en, eins og ég nefndi áðan, hefur engu að síður fengið þá meðferð í öðrum löndum og leitt til sjálfsritskoðunar.
Þetta er mál sem vinnur gegn þeim grundvallarmannréttindum sem felast í tjáningarfrelsi og þeim grundvallarþætti lýðræðisins sem felst í gagnrýni og skoðanaskiptum. Þetta er því mjög varhugavert frumvarp, herra forseti, og ekki með nokkru móti hægt að styðja það og það vekur undrun mína að flokkar í þessari ríkisstjórn, sem einhvern tímann kenndu sig við frjálslyndi, skuli ýta þessu áfram og láta þetta ganga svona langt með þeim verulegu annmörkum og hættum sem frumvarpið felur í sér. Ég mun því styðja tillögu um að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar.