jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmönnum sem hér hafa tjáð skoðun sína á þessu máli og vildi bara koma því á framfæri, sem ég fór reyndar yfir í ræðu minni eftir 2. umr., að það er auðvitað hægt að líta þannig á, við erum öll sammála um það, að mismunun sé þegar bönnuð samkvæmt stjórnarskrá. Það er auðvitað hægt að hafa þau sjónarmið að það eigi ekki að setja önnur sérlög sem tilgreini einhverja sérstaka mismununarþætti því að mismunun sé einfaldlega bönnuð. Ég hef oft tekið undir með þeim þingmönnum sem hafa talað með þeim hætti. Það breytir ekki þeirri staðreynd að við hófum þá vegferð að setja hér sérlög þar sem við setjum inn sérstaka mismununarþætti. Það eru líka ágætisrök fyrir því. Það sem við erum að gera hér er að aðlaga löggjöfina þannig að mismununarþættirnir séu þeir sömu í lögum um meðferð innan vinnumarkaðar og utan vinnumarkaðar. Ég held því að það sé einmitt mjög mikilvægt að þessi breyting eigi sér stað.
Ég vil líka minna á að árið 2018 afgreiddi þingið breytingu á lögum og var þá með sérstakt bráðabirgðaákvæði í lögunum þar sem hæstv. forsætisráðherra var falið að koma með það frumvarp sem hér liggur fyrir, þ.e. að vera með þessa mismununarþætti skilgreinda í frumvarpinu. Það voru hrein skilaboð frá þinginu sem fengu atkvæði allflestra þingmanna.
Varðandi umræðuna um áreitni, sem ég hef skilning á, þ.e. hvernig við skilgreinum áreitni, vil ég bara halda því til haga að hér erum við að notast við sömu skilgreiningu og er í öðrum lögum. Við erum að samræma skilgreiningu á áreitni, m.a. lög um kynferðisafbrot og kynferðislega áreitni. Ég held því að það sé líka mikilvægt að þegar við erum með slíkt orð í lögum séum við með samræmda skilgreiningu. En svo má alveg velta fyrir sér hvort skilgreiningin eigi að vera önnur, hvort hún kunni að vera aðeins of víð þarna. En ég held að það sé mikilvægt að hún sé eins í öllum lagabálkum.
Að því sögðu langar mig líka að segja að þetta er mál sem hefur fengið mjög mikla umræðu í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég segi þetta nú kannski sérstaklega vegna þess að hér á eftir munum við afgreiða mál sem hafa því miður ekki fengið mikla umræðu í nefndinni. Ég vil bara árétta það, því að það er mikilvægt, að mál komi hér inn í þingið tímanlega og þau fái vandlega og góða umfjöllun í fagnefndum. Þetta er eitt af slíkum málum. Allir umsagnaraðilar í þessu máli hafa komið fyrir nefndina sem gestir og nefndin hefur óskað eftir fleiri gestum til að fara mjög vel og vandlega yfir málið. Ég held því að þetta mál sé mjög vel unnið og vel útbúið. En auðvitað er ekki þar með sagt að við þurfum öll að vera sammála um það. Það er bara eðlilegt. Til þess erum við hér í þessum sal.
Ég ætla að ljúka þessu á því að segja að ég held að hér sé um gott mál að ræða. Þetta er réttarbót og ég held að það sé mikilvægt að tryggja að fólki sé ekki mismunað í þessu samfélagi. Við ræddum það ágætlega við 2. umr. Því miður erum við ekki í því samfélagi að hér eigi mismunun sér ekki stað, hún á sér stað hér á hverjum degi. Þess vegna er enn mikilvægara að við hér í þessum sal sendum skýr skilaboð um að það sé ekki ásættanlegt. Ég tek undir þá umræðu sem verið hefur á öðrum vettvangi, að við ættum einmitt að stíga fram og varpa þessari umræðu út í samfélagið og sjá til þess að við upprætum þá fordóma og fáfræði sem á sér stað þegar fólki er, af mismunandi ástæðum, mismunað í samfélaginu okkar.